Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 344
- Kl. 13:00 - 14:10
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 344
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonstaðgengill skipulagsstjóra
- Ólafur Jakobsson
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Hafnarstræti 86a - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer BN100175Erindi dagsett 4. apríl 2011 þar sem Bjarni Reykjalín f.h. Arkitekturs og ráðgjafar ehf., kt. 650106-1130, sækir um að setja tvo nýja glugga á húsið nr. 86a við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Bjarna Reykjalín dagsettar 4. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Huldugil 19 - byggingarstjóri
Málsnúmer BN100235Erindi dagsett 7. apríl 2011 þar sem Heimir Guðlaugsson óskar eftir að vera byggingarstjóri yfir byggingu sólskála við Huldugil 19.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Hólabraut 16 - breytingar - umsókn um byggingarstjóra
Málsnúmer BN110033Erindi dagsett 7. mars 2011 þar sem Karl Pétursson sækir um að vera byggingarstjóri við innanhússbreytingar að Hólabraut 16.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Furulundur 8 - umsókn um byggingarleyfi fyrir sorpskýli og endurnýjun þakklæðningar
Málsnúmer 2011040061Erindi dagsett 12. apríl 2011 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Húsfélags Furulundar 8, kt. 580184-0309, sækir um byggingarleyfi fyrir endurnýjun þakklæðningar og byggingu sorpskýlis við Furulund 8. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Grímseyjargata 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu
Málsnúmer 2011030026Erindi dagsett 3. mars 2011 þar sem Harladur Árnason f.h. Búvíss ehf., kt. 590106-1270, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 1 við Grímseyjargötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 7. og 11. apríl 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.