Umhverfis- og mannvirkjaráð - 10
- Kl. 08:15 - 11:50
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 10
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður tæknideildar
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Akureyrar 2017-2022
Málsnúmer 2015120164Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri mætti á fundinn og fór yfir drög að brunavarnaáætlun Slökkviliðs Akureyrar 2017-2022 dagsett 24. apríl 2017.
SVA - sala auglýsinga á strætisvagna í eigu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2017020079Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar mætti á fundinn og fór yfir drög að reglum og verðskrá vegna auglýsingasölu á strætisvagna dagsett 9. maí 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja reglurnar aftur fyrir ráðið á fundi þann 16. júní 2017.
Umhverfis- og mannvirkjasvið - þjónustukönnun 2017
Málsnúmer 2017030206Lögð fram til kynningar skýrsla dagsett 12. apríl 2017 frá Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri vegna könnunar á viðhorfi Akureyringa til þjónustu Strætisvagna Akureyrar, snjómoksturs, hálkuvarna, svifryks og hreinsunar gatna á Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur til að fulltrúar RHA verði fengnir á fund þar sem þeir fari yfir niðurstöður könnunarinnar. Einnig leggur ráðið til að skýrslan verði birt á vef Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjasvið - húsnæðismál
Málsnúmer 2017050072Rætt um húsnæðismál Umhverfismiðstöðvar.
Endurmælingar - gjaldskrá 2017
Málsnúmer 2017050006Lögð fram gjaldskrá fyrir endurmælingu bygginga og lóða fyrir árið 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til bæjarráðs.
Naustaskóli 6. áfangi - lóð
Málsnúmer 2017020140Lögð fram stöðuskýrsla 1 dagsett 11. maí 2017 vegna framkvæmda við suðurhluta lóðarinnar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar stöðuskýrslunni til fræðsluráðs til umsagnar.
Listasafn - endurbætur
Málsnúmer 2014010168Lagður fram verksamningur við ÁK smíði ehf um framkvæmdir við Listasafnið.
Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista á því athygli að hann teldi sig vanhæfan að fjalla um þennan lið.
Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir umhverfis- og mannvirkjaráð og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn.
Gunnar Gíslason D-lista greiddi atkvæði á móti samningnum.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista segir sig úr verkefnisliði um endurbætur á Listasafni Akureyrar.Stöðuskýrslur rekstrar 2017
Málsnúmer 2017020164Lögð fram stöðuskýrsla 2 fyrir rekstur umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Hrísey - hestaleiga
Málsnúmer 2017010283Lagt fram erindi dagsett 23. janúar 2017 frá Ingimari Ragnarssyni í Hrísey þar sem hann óskar eftir leyfi til að reka hestaleigu í Hrísey sumarið 2017. Óskað var eftir umsögn Matvælastofnunar og héraðsdýralæknis NA-umdæmis og gerðu þau ekki athugasemd við að leyfið yrði veitt með bréfi dagsettu 27. apríl 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar málefnun um leyfi til búfjárhalds í Hrísey til umsagnar í hverfisráði Hríseyjar og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Flokkun Eyjafjörður ehf - samningur um losun rotþróa
Málsnúmer 2017050069Rætt um samning varðandi tæmingu rotþróa frá 19. desember 2000 sem í gildi er á milli sveitarfélaga í Eyjafirði og Gámaþjónustu Norðurlands ehf.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að samningnum verði sagt upp með samningsbundnum fyrirvara.
Græn bílastæði í miðbæ Akureyrar
Málsnúmer 2017050071Lögð fram beiðni frá Vistorku ehf dagsett 28. apríl 2017 um fjölgun grænna bílastæða við Skipagötu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð vísar erindinu til skipulagsráðs en leggur jafnframt til að ákvörðunum um bílastæðamál í miðbænum verði frestað þar til framkvæmdum við Austurbrú lýkur.
Maðurinn sem minnkaði Vistsporið sitt
Málsnúmer 2017050025Lagt fram erindi dagsett 29. mars 2017 frá Sjálfbæru Íslandi vistsporamælinga- og viðburðasetri. Þar er Akureyrarbæ boðið að taka þátt í verkefni þeirra sem er að sýna heimildarmyndina "Maðurinn sem minnkaði Vistsporið sitt" fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar og almenning. Heildarkostnaður Akureyrarbæjar við verkefnið er áætlaður á bilinu kr. 200-500.000.
Umhverfis- og mannvirkjaráð getur ekki orðið við erindinu þar sem ráðið hefur ekki fjármagn í styrkveitingar og vísar erindinu því til bæjarráðs.