Stjórn Akureyrarstofu - 235
- Kl. 16:15 - 17:20
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 235
Nefndarmenn
- Sigfús Arnar Karlssonvaraformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Sædís Gunnarsdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs
Fjárhagsáætlun Akureyrarstofu 2018
Málsnúmer 2017060006Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2018 og forgangsverkefni í starfsáætlunum málaflokka stjórnarinnar.
Heiðursviðurkenningar 2017 - Menningarsjóður Akureyrar
Málsnúmer 2017030208Laugardaginn 2. september sl. var Erni Inga Gíslasyni fjöllistamanni veitt heiðursviðurkenning Menningarsjóðs Akureyrar fyrir fjölbreytt og mikilsvert framlag til menningarlífs á Akureyri. Viðurkenningarathöfnin fór fram í tengslum við A! - gjörningalistahátíð og var einn viðburða hennar.
Stjórn Akureyrarstofu vill með bókun þessari staðfesta formlega ákvörðun sína um viðurkenninguna og ítreka þakkir og hamingjuóskir til listamannsins.
Laxdalshús - útleiga
Málsnúmer 2015010247Á fundi stjórnar Akureyrarstofu þann 22. júní sl. var samþykkt að fela deildarstjóra Akureyrarstofu að vinna málið áfram og ljúka því, en þrír aðilar höfðu lýst yfir áhuga á því að fá húsið leigt.
Niðurstaða var að bjóða kammerkórnum Hymodiu afnot af húsinu.
Húsaleigusamningur var lagður fram til staðfestingar.Stjórn Akureyrarstofu staðfestir samninginn og fagnar því að komin sé regluleg starfsemi í húsið.
Menningarlandið 2017
Málsnúmer 2017090025Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur staðið fyrir ráðstefnu um menningarmál undanfarin ár undir heitinu Menningarlandið. Viðfangsefni Menningarlandsins í ár verður barnamenning og mikilvægi menningaruppeldis. Menningarlandið 2017 verður haldið á Dalvík 13.- 14. september nk.
Deildarstjóri Akureyrarstofu gerði grein fyrir málinu en hann á sæti í verkefnisstjórn ráðstefnunnar f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga.