Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 959
- Kl. 13:30 - 14:00
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 959
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Árnasoneftirlitsmaður
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfundarritari
Oddeyrarbót 2 - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2024030461Erindi dagsett 8. mars 2024 þar sem Rannveig Grétarsdóttir fyrir hönd Hvalaskoðunar Akureyrar ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir gáma við lóð nr. 2 að Oddeyrarbót.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 1. september 2024.
Kjarnagata 2 - umsókn um byggingarleyfi (niðurrif)
Málsnúmer 2024030808Erindi dagsett 15. mars 2024 þar sem Orkan IS ehf. sækir um niðurrif á bensínstöðinni Kjarnagötu 2.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Matthíasarhagi 8 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024030720Erindi dagsett 13. mars 2024 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd T21 ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á 2 hæðum á lóð nr. 8 við Matthíasarhaga. Innkomin gögn eftir Harald Sigmar Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Laxagata 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022020997Erindi dagsett 21. febrúar 2022 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Prashant Babubhai Patel sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 4 við Laxagötu. Fyrirhugað er að breyta mhl. 02 í 3 gistieiningar. Innkomin ný gögn 13. mars 2024 eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Krókeyrarnöf 19 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024031067Erindi dagsett 20. mars 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Sigurðar Karls Jóhannessonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 19 við Krókeyrarnöf. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.