Velferðarráð - 1364
- Kl. 14:00 - 16:15
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1364
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Karl Liljendal Hólmgeirsson
- Alfa Dröfn Jóhannsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2023
Málsnúmer 2023010262Heimsókn í öryggisvistun í Hafnarstræti þar sem Arna Jakobsdóttir forstöðumaður tók á móti velferðarráði og sýndi húsnæðið.
Samningur um öryggisgæslu 2022
Málsnúmer 2022030534Kynntur samningur um öryggisgæslu fyrir árið 2022 og ný gæðaviðmið fyrir starfsemina.
Fjárhagsaðstoð 2022
Málsnúmer 2022041999Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð árið 2022. Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Samþykkt fyrir velferðarráð - breytingar vegna barnaverndar
Málsnúmer 2023011382Lögð fram til samþykktar breyting á samþykkt fyrir velferðarráð Akureyrarbæjar. Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti samþykkt um velferðarráð og vísar breyttri samþykkt til bæjarráðs.
Barnaverndarþjónusta - samningur við Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 2023010023Lagður fram til samþykktar samningur við Dalvíkurbyggð um barnaverndarþjónustu. Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.
Barnaverndarþjónusta - samningur við Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahrepp, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhrepp
Málsnúmer 2023010024Lagður fram til samþykktar samningur um barnaverndarþjónustu við Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahrepp, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhrepp.
Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.
Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu skv. 12. gr. barnaverndarlaga
Málsnúmer 2022120565Lögð fram til samþykktar samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Eyjafjarðar samkvæmt 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 89/2002. Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá barnaverndarþjónustu Eyjafjarðar og vísar málinu til bæjarráðs.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2022
Málsnúmer 2022041998Lagt fram til kynningar rekstaryfirlit velferðarsviðs fyrir árið 2022.