Öldungaráð - 1
- Kl. 09:00 - 10:20
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Helgi Snæbjarnarsonformaður
- Arnrún Halla Arnórsdóttir
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Sigríður Stefánsdóttirfulltrúi EBAK
- Halldór Gunnarssonfulltrúi EBAK
- Valgerður Jónsdóttirfulltrúi EBAK
- Eva Björg Guðmundsdóttirfulltrúi HSN
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Öldungaráð - kosning varaformanns
Málsnúmer 2014040148Samkvæmt 4. grein Samþykktar um öldungaráð skipar bæjarstjórn formann en ráðið kýs sér varaformann. Lagt er til að Sigríður Stefánsdóttir verði varaformaður.
Öldungaráð samþykkir að Sigríður Stefánsdóttir verði varaformaður ráðsins.
Öldungaráð 2019 - samþykkt
Málsnúmer 2018120115Farið yfir samþykkt um öldungaráð sem bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 19. febrúar sl.
Öldungaráð samþykkir að fastir fundartímar verði á mánudögum kl. 09:00 og öllu jöfnu annan hvern mánuð. Fundað verður 6 - 8x á ári.
Fjárhagsáætlun 2020 samráð öldungaráðs og bæjarráðs
Málsnúmer 2019050217Samkvæmt tímaáætlun við gerð fjárhagsáætlunar 2020 er gert ráð fyrir samráðsfundi með öldungaráði þann 23. maí nk.
Öldungaráð óskar eftir að fundinum verði frestað svo ráðið geti undirbúið sig vel fyrir fundinn.
Ályktun aðalfundar EBAK 2019 um heilsueflingu eldri borgara
Málsnúmer 2019040163Á aðalfundi Félags eldri borgara á Akureyri sem haldinn var 1. apríl 2019 var samþykkt ályktun þar sem lagt er til að stofnaður verði starfshópur sem hafi það verkefni að undirbúa aðgerðaáætlun sem feli í sér aukna almenna heilsueflingu og hreyfingu eldri borgara í bæjarfélaginu.
Ályktunin var til umfjöllunar á fundi frístundaráðs þann 11. apríl sl. og var eftirfarandi bókað:
Frístundaráð vekur athygli á því að nú þegar er starfandi starfshópur um heilsueflandi samfélag og sér ekki ástæðu til að stofnaður verði annar starfshópur. Ráðið samþykkir að bjóða öldungaráði að tilnefna fulltrúa í starfshóp um heilsueflandi samfélag.
Samþykkt að taka málið aftur fyrir á næsta fundi og fá þá deildarstjóra íþróttamála inn á fundinn til að kynna betur vinnu stýrihóps um heilsueflandi samfélag.
Akstursþjónusta Akureyrarbæjar - reglur
Málsnúmer 2019040309Á fundi velferðarráðs þann 24. apríl sl. voru lögð fram drög að reglum um akstursþjónustu Akureyrarbæjar. Samþykkt var að óska eftir umsögn öldungaráðs.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Öldungaráð - önnur mál
Málsnúmer 2017040160Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs fór yfir stöðu þeirra mála sem öldungaráð hefur haft til umfjöllunar.