Skipulagsráð - 268
- Kl. 08:00 - 10:55
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 268
Nefndarmenn
- Tryggvi Már Ingvarssonformaður
- Helgi Snæbjarnarson
- Ólína Freysteinsdóttir
- Ólafur Kjartansson
- Sigurjón Jóhannesson
- Jón Þorvaldur Heiðarssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Bjarki Jóhannessonskipulagsstjóri
- Anna Bragadóttirverkefnastjóri skipulagsmála
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Lögð fram eftirtalin gögn til umfjöllunar:
1. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030, greinargerð endurskoðuð með hliðsjón af innkomnum umsögnum og ábendingum.
2. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030, séruppdráttur Akureyri endurskoðaður með hliðsjón af innkomnum umsögnum og ábendingum.
3. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030, séruppdráttur Hrísey og Grímsey endurskoðaður með hliðsjón af innkomnum umsögnum og ábendingum.
4. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030, sveitarfélagsuppdráttur endurskoðaður með hliðsjón af innkomnum umsögnum og ábendingum.
5. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030, þéttingarsvæði séruppdráttur endurskoðaður með hliðsjón af innkomnum umsögnum og ábendingum.
6. Umsagnir og úrvinnsla, tillaga að svörum/úrvinnslu umsagna sem bárust við drög að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.
7. Ábendingar og svör, tillaga að svörum/úrvinnslu ábendinga sem bárust við drög að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.
8. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030, Umhverfisskýrsla.
9. Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030, stígakort (fylgiskjal).
10. Tímaferli aðalskipulagsins.Skipulagsráð fór yfir ábendingar og umsagnir sem borist hafa við skipulagstillöguna og svör ráðsins koma fram í skjölunum "Ábendingar og úrvinnsla" og "Umsagnir og úrvinnsla" sem birtar verða með fundargerð.
Afgreiðslu skipulagsins frestað til aukafundar 17. eða 18. ágúst næstkomandi.Fylgiskjöl
Kjarnagata 51 - breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2017060145Erindi dagsett 22. júní 2017 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Kjarnagötu 51.
Breyting á deiliskipulagi felst í eftirfarandi:
1. Byggingareitir innan lóðahluta breikka um 0,6 m inn á lóð en með því verða inngangssvalir/stigahús innan byggingareita.
2. Svalir íbúða mega ná 2,0 m út fyrir byggingareiti en áður var hámarkið 1,6 m.
3. Byggingarmagn innan lóðarhluta við Davíðshaga 2 hækki úr 2.202,0 m² í 2.392,0 m².
4. Byggingarmagn innan lóðarhluta við Davíðshaga 4 hækki úr 2.187,8 m² í 2.392,0 m².
5. Byggingarmagn innan lóðarhluta við Kristjánshaga 2 lækki úr 2.031,3 m² í 1.830,0 m².
6. Byggingarmagn innan lóðarhluta við Elísarbetarhaga 1 hækki úr 1.396,7 m² í 2.028,0 m².
7. Byggingarmagn innan lóðarhluta við Kjarnagötu 51 hækki úr 1.857,7 m² í 1.925,0 m².
8. Byggingarmagn innan lóðarhluta við Kjarnagötu 53 hækki úr 1.814,6 m² í 1.925,0 ².
9. Byggingarmagn sameiginlegs afnotahluta lækki úr 2.002,0 m² í 1.751,0 m² sem skiptist í bílageymslu: 1.626,0 m² og skýli: 125,0 m².
10. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækki úr 1,17 í 1,46. Megin ástæða þeirrar breytingar er sú að áður var byggingarmagn bílageymslu skráð sér í lóðarlykli og því var byggingarmagn bílageymslu ekki hluti af nýtingarhlutfalli í lóðarlykli. Önnur ástæða fyrir hækkuðu nýtingarhlutfalli er sú að bætt er við kjallara að hluta undir öllum húsunum.
11. Smávægileg breyting verði gerð á uppsetningu lóðarlykils fyrir Kjarnagötu 51. Skilgreiningin "byggingarmagn bílageymslu" breytist í "byggingarmagn bílageymslu/skýlis". Er þar átt við aðstöðuskýli á sameiginlegum afnotahluta.
12. Breyting verði gerð á byggingarreit fyrir tengibyggingu milli Davíðshaga 4 og bílageymslu þannig að tengibyggingin verði innan sérafnotahluta lóðar fyrir Davíðshaga 4.
Deiliskipulagstillagan er unnin af Landslagi ehf. dagsett 5. júlí 2017.
Meðfylgjandi eru samþykki meðeigenda í lóð.Einungis er um að ræða minniháttar leiðréttingu og breytingar á deiliskipulaginu og er breyting sem varðar einungis Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Þess vegna leggur skipulagsráð til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 2. málslið, 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og sviðsstjóra skipulagssviðs falið að annast gildistöku hennar.
Iðnaðarsvæði við Krossanes - deiliskipulag
Málsnúmer 2017060224Tekin fyrir tillaga sviðsstjóra að hafinn verði undirbúningur á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis við Krossanes, reit 1.14.1 I í aðalskipulagi.
Skipulagsráð heimilar sviðsstjóra skipulagssviðs að hefja undirbúning að deiliskipulagi svæðisins.