Bæjarráð - 3610
- Kl. 08:15 - 12:55
- Fundaaðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 3610
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirforstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar ritaði fundargerð
Viðauki vegna aukins stuðnings í leikskólum
Málsnúmer 2018090324Liður 4 í fundargerð fræðsluráðs dagsettri 1. október 2018:
Viðauki vegna aukins stuðnings í leikskólum lagður fram til 2. umræðu.
Fræðsluráð samþykkir að vísa óskinni um viðauka til bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 11.800.000 og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna þessa.
Fylgiskjöl
Viðauki vegna villu í launaáætlun leikskólans Tröllaborga
Málsnúmer 2018090325Liður 5 í fundargerð fræðsluráðs dagsettri 1. október 2018:
Viðauki vegna launaáætlunar leikskólans Tröllaborga lagður fram til 2. umræðu.
Fræðsluráð samþykkir að vísa óskinni um viðauka til bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 6.066.000 og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna þessa.
Fylgiskjöl
Skákfélag Akureyrar - styrkbeiðni vegna alþjóðlegs skákmóts 2019
Málsnúmer 2018010366Erindi dagsett 25. janúar 2018 frá formanni Skákfélags Akureyrar þar sem sótt er um styrk vegna alþjóðlegs skákmóts vorið 2019 í tilefni af 100 ára afmæli félagsins.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
Starfs- og fjárhagsáætlun frístundaráðs 2019 - gjaldskrá Hlíðarfjalls
Málsnúmer 2018080857Lögð fram tillaga frístundaráðs að gjaldskrá Hlíðarfjalls með gildistíma frá hausti 2018 til hausts 2019.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn. Jafnframt er frístundaráði falið að móta tillögur að fjölskyldukorti í íþrótta- og frístundamannvirki Akureyrarbæjar og skila til bæjarráðs fyrir árslok 2018.
Fylgiskjöl
Fjárlagafrumvarp 2019
Málsnúmer 2018090424Karl Guðmundsson verkefnastjóri á fjársýslusviði mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið og fór yfir þau mál sem snúa að Akureyrarbæ.
Frumvarpið og fylgigögn er að finna á eftirfarandi slóð:
https://www.stjornarradid.is/verkefni/efnahagsmal-og-opinber-fjarmal/fjarlog/fjarlog-fyrir-arid-2019/
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Fylgiskjöl
Útboð - yfirlit
Málsnúmer 2017100204Umræða um stöðu útboða. Karl Guðmundsson verkefnastjóri kynnti samantekt sína um málið.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Aðalstræti 60, 62 og 64 - eignir boðnar til kaups
Málsnúmer 2018100022Erindi dagsett 26. september 2018 þar sem Sigurður Baldursson f.h. EXT ehf. býður Akureyrarbæ til kaups lóðir og fasteignir við Aðalstræti 60, 62 og 64.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð hafnar erindinu.
Fylgiskjöl
Fjársýslusvið - starfsáætlun 2019
Málsnúmer 2018100008Lögð fram drög að starfsáætlun fjársýslusviðs fyrir árið 2019.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir starfsáætlun fjársýslusviðs fyrir árið 2019.
Stjórnsýslusvið - starfsáætlun 2019
Málsnúmer 2018060362Lögð fram drög að starfsáætlun stjórnsýslusviðs fyrir árið 2019.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir starfsáætlun stjórnsýslusviðs fyrir árið 2019.
Fjárhagsáætlun 2019 - 121 - stjórnsýslusvið og fjársýslusvið
Málsnúmer 2018090323Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2019 fyrir málaflokk 121.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 121 sem gera ráð fyrir viðbótum við útgefinn ramma að upphæð kr. 34.219.000 og vísar málinu til frekari vinnslu við gerð fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar.
Námsstyrkjasjóður sérmenntaðra starfsmanna
Málsnúmer 2018080977Liður 3 í fundargerð kjarasamninganefndar dagsettri 24. september 2018:
Umfjöllun um erindi dagsett 28. ágúst 2018 um úthlutun launaðs námsleyfis með tilstyrk Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna Akureyrarbæjar.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að í fjárhagsáætlun árins 2019 verði gert ráð fyrir framlagi í samræmi við reglur Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra. Kjarasamninganefnd felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að setja í gang vinnu við endurskoðun á reglum sjóðsins.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar.
Fylgiskjöl
Nefndalaun - breytingar á reglum 2018
Málsnúmer 2018090342Lögð fram tillaga að reglum um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að reglum um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ.
Fylgiskjöl
Straumlínustjórnun - Lean - innleiðing
Málsnúmer 2018100030Umræða um stöðu innleiðingar straumlínustjórnunar.
Frestað.
Akureyrarflugvöllur
Málsnúmer 2018010214Málefni Akureyrarflugvallar tekin til umræðu að beiðni Gunnars Gíslasonar D-lista með vísan til umræðu í bæjarstjórn 18. september sl. Ræddar verða hugmyndir um að fara í gerð viðskiptaáætlunar sem tæki mið af því að Akureyrarbær taki yfir rekstur flugvallarins af Isavia ohf. með samningi við ríkið.
Frestað.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - ársfundur 2018
Málsnúmer 2018090387Erindi dagsett 20. september 2018 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 10. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn verður í sal B sem er staðsettur á jarðhæð hótelsins og hefst kl. 16:00.
Bæjarráð felur formanni bæjarráðs að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Fylgiskjöl
Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 309. fundar stjórnar Eyþings dagsett 21. september 2018.
Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdir-1Frumvarp til laga um breytingu á vegalögum nr. 80/2007, 32. mál 2018
Málsnúmer 2018090400Lagt fram til kynningar erindi dagsett 27. september 2018 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um vegalög, 32. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 11. október nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/149/s/0032.pdfFrumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25 mál 2018
Málsnúmer 2018090416Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. september 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 26. október nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/149/s/0025.htmlTillaga til þingsályktunar um stofnun ráðgjafarstofu innflytjenda, 19. mál 2018
Málsnúmer 2018090392Lagt fram til kynningar erindi dagsett 26. september 2018 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stofnun ráðgjafarstofu innflytjenda, 19. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 17. október nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/149/s/0019.html