Skólanefnd - 16
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 16
Nefndarmenn
- Preben Jón Péturssonformaður
- Anna Sjöfn Jónasdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Sædís Gunnarsdóttir
- Áslaug Magnúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hjörtur Narfasonáheyrnarfulltrúi
- Kristín Sigfúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Jón Aðalsteinn Brynjólfssonfulltrúi grunnskólakennara
- Heimir Eggerz Jóhannssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- fulltrúi leikskólastjóra
- Helga María Harðardóttirfulltrúi leikskólakennara
- Íris Björk Árnadóttirfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun 2014 - fræðslu- og uppeldismál
Málsnúmer 2013080061Kristín Jóhannesdóttir fulltrúi skólastjóra grunnskóla og Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi boðuðu forföll.$line$
Fyrir fundinn var lögð tillaga að fjárhagsáætlun fræðslu- og uppeldismála fyrir árið 2014. Tillagan gerir ráð fyrir því að rekstur ársins rúmist innan útgefins ramma sem er kr. 5.045.701.000. Í tillögunni felst að gjaldskrár hækki um 6% frá næstu áramótum og að þjónustustig skólanna verði með sambærilegum hætti og verið hefur undangengin ár. Þá er gert ráð fyrir því að taka upp hærra gjald í leikskólum umfram 8 klukkustunda dvöl á dag.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 ásamt tillögum að breytingum á gjaldsskrám og vísar henni til bæjarráðs.

Framkvæmd reglugerðar nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga í leik- og grunnskólum
Málsnúmer 2013040005Lagður fram til kynningar tölvupóstur dags. 24. september 2013 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem eftirfarandi kemur fram: \n Í mars 2013 fól mennta- og menningarmálaráðuneytið Capacent Gallup ehf að gera könnun meðal sveitarstjórna um fyrirkomulag og framkvæmd reglugerðar nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum. Könnunin var liður í þriggja ára áætlun ráðuneytisins um úttektir og kannanir í leik- og grunnskólum á tímabilinu 2013-2015 en einnig hluti af lögboðnu eftirliti mennta- og menningarmálaráðuneytisins skv. 4. og 38. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og 3. og 20. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla. Þrátt fyrir endurteknar ítrekanir af hálfu bæði Capacent Gallup og ráðuneytisins svöruðu einungis 59 sveitarfélög af 74 umræddri könnun. Niðurstöður könnunar liggja fyrir og fylgja hér með í viðhengi. Þær verða birtar á vef ráðuneytisins.

Framkvæmd reglugerðar nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga í leik- og grunnskólum
Málsnúmer 2013040005Lagt fram til kynningar erindi dags. 10. september 2013 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, þar sem tilkynnt er um úttekt á fyrirkomulagi og framkvæmd sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum. Akureyrarbær er eitt þessara sex sveitarfélaga og kemur fram í erindinu að þessi úttekt hafi verið ákveðin í kjölfar niðurstaðna könnunar sem ráðuneytið fól Capacent Gallup ehf að gera vorið 2013 og hafa verið kynntar í skólanefnd.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - greiðslur 2014
Málsnúmer 2013060051Lagt fram til kynningar erindi dags. 24. september 2013 frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þar sem kynnt er staða í viðræðum um framlengingu og endurskoðun á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til námsins.