Fræðsluráð - 16
- Kl. 13:30 - 16:00
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 16
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Heimir Haraldsson
- Hildur Betty Kristjánsdóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - innleiðing
Málsnúmer 2014030109Alfa Dröfn Jóhannsdóttir sérfræðingur á samfélagssviði og Hjördís Eva Þórðardóttir fulltrúi UNICEF komu á fundinn og kynntu næstu skref við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á Akureyri.
Fylgiskjöl
Verklagsreglur vegna nemenda með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2018080875Sigurbjörg Rún Jónsdóttir forstöðumaður þjónustu kom á fundinn og gerði grein fyrir drögum að verklagsreglum vegna nemenda með fjölþættan vanda.
Ytra mat á grunnskólum 2015-2020
Málsnúmer 2015050045Bréf dagsett 16. ágúst 2018 frá mennta- og menningarmálaráðuneyti um ytra mat Brekkuskóla, þar sem ráðuneytið staðfestir móttöku úrbótaáætlunar skólans, var lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Endurskoðun skólastefnu 2018
Málsnúmer 2017080125Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti stöðu vinnunnar við endurskoðun skólastefnu Akureyrarbæjar.
Fylgiskjöl
Myndlistaskólinn á Akureyri - ársreikningur 2017
Málsnúmer 2018070485Bæjarráð hefur óskað eftir að fræðsluráð skipi fulltrúa í starfshóp um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi í bænum. Tilefnið er m.a. að samningur bæjarins við Myndlistaskólann á Akureyri um stuðning við starfsemina rennur út í lok skólaárs 2018-2019.
Fræðsluráð samþykkir að Ingibjörg Isaksen verði skipuð í hópinn.
Glerárskóli - vinnuhópur
Málsnúmer 2017080128Umhverfis- og mannvirkjasvið óskar eftir að fræðsluráð tilnefni fulltrúa í vinnuhóp vegna nýbyggingar við Glerárskóla.
Fræðsluráð samþykkir að Ingibjörg Isaksen verði skipuð í hópinn.
Gjaldskrár fræðslusviðs 2019
Málsnúmer 2018080863Lagðar voru fram til kynningar og umræðu tillögur að gjaldskrám fyrir árið 2019.
Umræðunni frestað til næsta fundar.
Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2019-2022
Málsnúmer 2018060289Ingibjörg Isaksen formaður fræðsluráðs fór yfir drög að starfsáætlun fræðsluráðs fyrir árið 2019.
Rekstur fræðslumála 2018
Málsnúmer 2018030030