Skólanefnd - 23
- Kl. 13:30 - 15:27
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 23
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Rekstur fræðslumála 2015
Málsnúmer 2015040087Staða janúar - október 2015.
Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri fór yfir stöðuna.Fjárhagsáætlun fræðslumála 2016-2019
Málsnúmer 2015050243Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir þær breytingar sem orðið hafa á fjárhagsáætlun 2016 og kynnti áætlun fyrir árin 2017-2019.
Lagt fram til kynningar.Sumarlokun leikskóla 2016-2017
Málsnúmer 2015110195Jónína Hauksdóttir fulltrúi leikskólastjóra vék af fundi kl. 15:00. <br />
Hrafnhildur G. Sigurðardóttir leikskólafulltrúi á skóladeild gerði grein fyrir fyrirkomulagi á sumarlokunum leikskóla árin 2016 og 2017.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi áætlun um fyrirkomulag á sumarlokunum leikskóla árin 2016 og 2017.
Jafnhliða er skóladeild falið að leggja fyrir könnun til foreldra í upphafi árs 2016 um framtíðarsýn þeirra á sumarlokun.Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2015-2019
Málsnúmer 2015100143Lögð fram til kynningar og umsagnar.
Afgreiðslu frestað.
Rannsóknarleyfi í leik- og grunnskólum 2015-2016
Málsnúmer 2015090136Kynnt beiðni frá þroska- og hegðunarstöð og Háskólanum í Reykjavík um þátttöku leikskóla á Akureyri í rannsókn sem ber heitið: Athugun á próffræðilegum eiginleikum íslenskrar útgáfu Kvíðamatskvarða leikskólabarna (PAS-R). Rannsóknin hefur verið samþykkt af vísindasiðanefnd.
Skólanefnd samþykkir þátttöku og vísar til viðmiðunarreglna um rannsóknir í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar.
Móttaka flóttamanna
Málsnúmer 2015090017Logi Már Einarsson formaður skólanefndar og Anna María Hjálmarsdóttir fulltrúi skólanefndar í undirbúningshópnum fóru yfir stöðuna, en Akureyrarbær hefur samþykkt að taka á móti 23 flóttamönnum.
Umræður.