Velferðarráð - 1204
- Kl. 14:00 - 16:42
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1204
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttirformaður
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Rósa Matthíasdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttir
- Soffía Lárusdóttirframkvæmdastjóri
- Bryndís Dagbjartsdóttir
- Margrét Alfreðsdóttir
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Kolbeinn Aðalsteinssonfundarritari
Sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk 2011-2014
Málsnúmer 2011020021Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lögðu fram fundargerð 6. fundar þjónusturáðs vegna samnings um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlaða sem haldinn var 11. nóvember 2014.
Í 3. lið fundargerðar samþykkja fundarmenn að leggja til við aðildarsveitarfélög að framangreindur samningur um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði verði framlengdur um 1 ár eða til 31. desember 2015. Samningurinn ásamt uppfærðum viðauka 1 var einnig lagður fram.Velferðaráð samþykkir framlengingu á samningi um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlaða fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.
Félagsmálaráð - rekstraryfirlit 2014
Málsnúmer 2014010036Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri og Margrét Alfreðsdóttir skrifstofustjóri búsetudeildar og Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar kynntu rekstrarniðurstöðu fyrir sínar deildir árið 2014.
Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.
CONNECT - verkefnið
Málsnúmer 2014060231Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar kynntu stuttlega (örkynning) norræna samstarfsverkefnið CONNECT sem Akureyri tekur þátt í. Þessi kynning er byrjun á fleiri örkynningum um velferðartækni og einstök verkefni á því sviði.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Öldrunarrými - biðlisti 2015
Málsnúmer 2015020099Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar kynnti biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrýmum.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 416. mál
Málsnúmer 2015020059Erindi dagsett 9. febrúar 2015 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar), 416. mál. Lögð fram drög að umsögn.
Velferðarráð samþykkir umsögnina og óskar eftir því að hún verði send áfram til nefndasviðs Alþingis.
Frumvarp til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks (aukin vinnuvernd og notendastýrð persónuleg þjónusta), 454. mál
Málsnúmer 2015020062Erindi dagsett 9. febrúar 2015 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks (aukin vinnuvernd og notendastýrð persónuleg þjónusta), 454. mál.
Velferðarráð samþykkir framlagða umsögn og óskar eftir því að hún verði send áfram til nefndasviðs Alþingis.
Samstarfsverkefni gegn heimilisofbeldi
Málsnúmer 2014120069Lögð voru fram drög að samkomulagi við embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um átak gegn heimilisofbeldi. Ennfremur lagt fram minnisblað Áskels Arnar Kárasonar forstöðumanns barnaverndar dagsett 16. febrúar 2015.
Velferðarráð fagnar þessum samstarfssamningi og samþykkir samkomulagið ásamt því að heimila fjölskyldudeild að hefja samstarfið frá 1. mars 2015.