Framkvæmdaráð - 247
- Kl. 10:00 - 12:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 247
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Helgi Snæbjarnarson
- Sigríður María Hammer
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Sigfús Arnar Karlsson
- Bjarni Sigurðssonvaraáheyrnarfulltrúi
- Jón Ingi Cæsarssonáheyrnarfulltrúi
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
- Bergur Þorri Benjamínssonfundarritari
Fráveita - upplýsingar um stöðu mála 2011
Málsnúmer 20111200444. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 2. febrúar 2012:\nErindi dags. 26. janúar 2012 frá Alfreð Schiöth framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra þar sem heilbrigðisnefnd skorar á bæjarstjórn Akureyrar að láta úrbætur á fráveitu Akureyrarbæjar fá algjöran forgang í framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs. Meðfylgjandi er bókun heilbrigðisnefndar frá 25. janúar sl.\nBæjarráð vísar erindinu til framkvæmdaráðs. \n\nHelgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur fór yfir stöðu fráveitumála í sveitarfélaginu.

Framkvæmdaráð telur rétt að möguleikar í fráveitulausnum verði skoðaðir betur og felur bæjartæknifræðingi að vinna áfram að málinu.

Framkvæmdaráð óskar eftir að fá niðurstöður á mælingu Heilbrigðiseftirlitis Norðurlands eystra síðustu ára á svæðinu til samanburðar og yfirlit yfir þær aðgerðir sem önnur sveitarfélög á svæðinu hafa farið í á tímabilinu.

Aflþynnuverksmiðjan Becromal Akureyri - stækkun - beiðni um umsögn
Málsnúmer 2012020095Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 7. febrúar 2012 þar sem óskað er eftir umsögn um hvort og á hvaða forsendum ofangreind framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

Framkvæmdaráð telur framkvæmdina ekki háða mati á umhverfisáhrifum.

Blindrafélagið - ferðaþjónusta blindra - endurskoðun á samningi
Málsnúmer 2011120036Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur kynnti stöðu mála vegna endurskoðunar á samningi frá mars 2008 milli Blindrafélagsins og Akureyrarbæjar.

Framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi og felur bæjartæknifræðingi að ganga frá samningi við Blindrafélagið.

Snjómokstur - yfirlit fyrir árið 2011
Málsnúmer 2012020114Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatnamála kynnti yfirlit um kostnað vegna snjómoksturs og hálkuvarna og magn hálkuvarnarefna á árinu 2011.

Hrafnagilsstræti/Þórunnarstræti - gangbrautarljós með hljóðmerki við gatnamót
Málsnúmer 2012010100Erindi dags. 6 janúar 2012 frá Rannveigu Traustadóttir hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga um hljóðmerki á gangbrautarljós við Hrafnagilsstræti/Þórunnarstræti.

Framkvæmdaráð samþykkir að gera tilraun með uppsetningu hljóðmerkja á umferðarljósum á gatnamótum Hrafnagilsstrætis og Þórunnarstrætis.

Önnur mál í framkvæmdaráði 2012
Málsnúmer 2012020036Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi S-lista lagði fram spurningar um námavinnslu í Nesjahverfi.