Bæjarráð - 3405
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3405
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Oddur Helgi Halldórsson
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Ragnar Sverrisson
- Sigurður Guðmundsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Hverfisnefnd Giljahverfis - fundargerðir 2014
Málsnúmer 2014010025Lögð fram fundargerð 11. fundar hverfisnefndar Giljahverfis dags. 20. febrúar 2014 auk fundargerðar 12. fundar - aðalfundar hverfisnefndar Giljahverfis dags. 27. febrúar 2014.

Fundargerð 11. fundar lögð fram til kynningar í bæjarráði.

Bæjarráð vísar 5. lið fundargerðar 12. fundar - aðalfundar til framkvæmdaráðs, aðrir liðir fundargerðarinnar eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

Þegar hér var komið mætti Ragnar Sverrisson S-lista á fundinn kl. 09:06.$line$
Hverfisnefnd Oddeyrar - fundargerðir 2014
Málsnúmer 2014010011Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar hverfisnefndar Oddeyrar dags. 6. mars 2014.\nFundargerðina má finna á netslóðinni:\nhttp://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/oddeyri/fundargerdir

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2014
Málsnúmer 2014010020Lagðar fram til kynningar fundargerðir 812. og 813. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 31. janúar og 28. febrúar 2014. Fundargerðirnar má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx
Styrktarsjóður EBÍ 2014
Málsnúmer 2014020033Erindi dags. 4. febrúar 2014 frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands varðandi umsóknir í styrktarsjóð EBÍ 2014.\nAðildarsveitarfélag sendir aðeins inn eina umsókn sem skila á á þar til gerðu umsóknareyðublaði. Umsóknir skulu vera vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna en ekki vegna almennra rekstrarverkefna þeirra. \nUmsóknarfrestur er til loka apríl nk.

Bæjarráð hvetur nefndir og deildir bæjarins til að skoða verkefni sem falla undir reglur sjóðins og senda tillögur til bæjarstjóra fyrir 8. apríl nk.

Norðurorka hf - aðalfundur 2014
Málsnúmer 2014030050Erindi dags. 4. mars 2014 frá stjórn Norðurorku hf þar sem boðað er til aðalfundar Norðurorku hf föstudaginn 21. mars 2014 kl. 14:00 í Hofi, Akureyri.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Málþing um kennslu í óhefðbundnu rými - styrkbeiðni
Málsnúmer 2014030060Erindi dags. 7. mars 2014 frá Háskólanum á Akureyri þar sem óskað er eftir styrk frá Akureyrarbæ að upphæð kr. 100.000 vegna málþings um kennslu í óhefðbundnu rými sem haldið verður föstudaginn 14. mars nk. kl. 13:30-16:30 á vegum hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri.

Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000 sem færist af styrkveitingum bæjarráðs.

Samningur um stuðning Akureyrarbæjar við rekstur Menningarfélagsins Hofs árin 2013-2015
Málsnúmer 20140300173. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dags. 6. mars 2014:\nLögð fram drög að endurnýjuðum samningi við Menningarfélagið.\nStjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar bæjarráðs.

Jarðvinnuverktakar - samskipti
Málsnúmer 2014030063Rætt um samskipti við jarðvinnuverktaka.