Bæjarráð - 3509
- Kl. 08:30 - 10:59
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3509
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Edward Hákon Huijbensáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dagný Magnea Harðardóttirskrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2017-2020
Málsnúmer 2016050137Lögð fram tillaga um fjárhagsáætlunarferlið og tillaga að tekjuáætlun og fjárhagsramma vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um fjárhagsáætlunarferlið.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir framlagða tillögu um tekjuáætlun og fjárhagsramma.
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista sat hjá við afgreiðslu.Fjölmiðlavaktin - fjölmiðlaumfjöllun um Akureyrarbæ
Málsnúmer 2016060043Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri kynningarmála Akureyrarbæjar og Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu fóru yfir fjölmiðlaumfjöllun um Akureyrarbæ janúar-maí 2016.
Grímsey - staða mála
Málsnúmer 2016050282Umræður um niðurgreiðslur á fargjöldum og aðrar tillögur sem fram voru settar í tillögum starfshóps forsætisráðherra sem fram komu sl. haust.
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir verkefnastjóri atvinnumála og Helga Íris Ingólfsdóttir verkefnastjóri brothættra byggða Hrísey og Grímsey sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerð
Málsnúmer 2016010037Lögð fram fundargerð 93. fundar hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dagsett 3. maí 2016. Fundargerðina má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdir-2014-2015Bæjarráð vísar lið 2.1 og 2.2 og 3., 4. og 5. lið til verkefnastjóra umhverfismála, lið 2.3, 2.4, 2.6, 2.7 og 2.8 til framkvæmdadeildar, lið 2.5 til Fasteigna Akureyrarbæjar og lið 2.9 til skóladeildar, 1. og 6. liður fundargerðarinnar eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.
Frumvarp til laga um timbur og timburvöru, 785. mál
Málsnúmer 2016050289Lagt fram til kynningar erindi dagsett 31. maí 2016 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um timbur og timburvöru, 785. mál 2016.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 14. júní nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/1340.html