Samfélags- og mannréttindaráð - 86
- Kl. 15:00 - 17:00
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 86
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Helga Eymundsdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Forvarnastefna - endurskoðun 2010
Málsnúmer 2010110033Lögð fram drög að nýrri forvarnastefnu fyrir Akureyrarbæ.\nGréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarstjórnar til samþykktar.

Áfengis- og vímuvarnir
Málsnúmer 20110400901. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 28. apríl 2011:\nSigríður Huld Jónsdóttir aðstoðarskólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari Menntaskólans á Akureyri, Sigmundur Magnússon húsbóndi heimavistar VMA og MA, Valgerður Jónsdóttir forvarnafulltrúi Verkmenntaskólans á Akureyri og Hólmfríður Jóhannsdóttir forvarnafulltrúi Menntaskólans á Akureyri mættu á fund bæjarráðs til að ræða um aukna neyslu ungmenna á Akureyri á kannabisefnum.\nHlín Bolladóttir formaður samfélags- og mannréttindaráðs sat fundinn undir þessum lið.\nBæjarráð þakkar þeim Sigríði Huld, Sigurlaugu Önnu, Sigmundi, Valgerði og Hólmfríði fyrir komuna á fundinn og vísar málinu til samfélags- og mannréttindaráðs.\nGréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð lýsir yfir áhyggjum af ástandinu og mun vinna áfram að málinu. Ráðið mun taka þátt í málþinginu Bara gras? sem haldið verður á Akureyri lok maí og er samstarfsverkefni um 20 hreyfinga og samtaka. Málþingið er ætlað foreldrum og markmiðið er að fræða foreldra um skaðsemi kannabis og hjálpa þeim að leita sér upplýsinga.

Forvarnadagurinn 2010
Málsnúmer 2011050013Skýrsla með niðurstöðum forvarnadagsins 2010 lögð fram til kynningar. Forvarnadagurinn var haldinn í fimmta sinn 3. nóvember 2010 að frumkvæði forseta Íslands, Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta o.fl.\nGréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

Fyrsta ölvunin - skýrsla
Málsnúmer 2007010223Lögð fram til kynningar skýrslan Fyrsta ölvunin: Umhverfi og félagslegt samhengi fyrstu ölvunarinnar meðal 15-19 ára skólanema á Íslandi. Skýrslan var unnin af Rannsóknum & greiningu. Í skýrslunni kemur m.a. fram að tíðni ölvunardrykkju eykst á milli loka grunn- og framhaldsskóla og einnig á milli ára innan framhaldsskólans.\nGréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

Menntasmiðja kvenna
Málsnúmer 2008080086Umræður um stöðu samnings við Starfsendurhæfingu Norðurlands um rekstur Menntasmiðju kvenna.

Samfélags- og mannréttindaráð sér ekki ástæðu til að gera breytingar á núgildandi rekstrarsamningi við Starfsendurhæfingu Norðurlands um rekstur á Menntasmiðju kvenna sem gildir út árið 2012.

Almannaheillanefnd
Málsnúmer 2008100088Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar frá 15. apríl 2011.