Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 274
- Kl. 08:15 - 10:00
- Fundarherbergi FAK
- Fundur nr. 274
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Eiríkur Jónsson
- Jón Orri Guðjónsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun 2016 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015090007Lögð fram til kynningar fjárfestingaráætlun 2016-2019 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2015.
Stöðuskýrslur FA 2015
Málsnúmer 2015040077Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 10 fyrir stjórn FA dagsett 4. febrúar 2016.
Skautahöllin - nýtt svell
Málsnúmer 2015020134Lagðar fram niðurstöður útboðs á jarðvinnu og múrbroti annars vegar og uppbyggingu gólfplötu og svells hins vegar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðendur í báðum útboðunum.
Naustaskóli - íþróttahús
Málsnúmer 2015020029Lögð fram minnisblöð dagsett 4. febrúar 2016 um niðurstöður verðkannana vegna kaupa á gólfi, ljósum, lyftu og skiptitjaldi fyrir íþróttahúsið.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við eftirtalda aðila:
Íþróttagólf - Altís ehf.
Lyfta - Kone ehf.
Ljós - Rönning, Rafmiðlun, Reykjafell og Smith & Norland.
Skiptitjald - Á.Óskarsson ehf.Verkfundargerðir FA 2016
Málsnúmer 2016010153Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Listasafn endurbætur - 8. og 9. fundur verkefnisliðs dagsettir 17. desember 2015 og 21. janúar 2016.
Naustaskóli íþróttahús: 11. og 12. verkfundur dagsettir 11. desember 2015 og 22. janúar 2016.
Skautahöllin endurnýjun svells: 12. fundur verkefnisliðs dagsettur 3. febrúar 2016.
Boginn - endurnýjun gervigrass: 1. fundur verkefnisliðs dagsettur 4. febrúar 2016.