Skólanefnd - 1
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Preben Jón Péturssonformaður
- Anna Sjöfn Jónasdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Sædís Gunnarsdóttir
- Áslaug Magnúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hjörtur Narfasonáheyrnarfulltrúi
- Kristín Sigfúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Jón Baldvin Hannessonfulltrúi skólastjóra
- Jón Aðalsteinn Brynjólfssonfulltrúi grunnskólakennara
- Sædís Inga Ingimarsdóttirfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Kristlaug Þ Svavarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Hildur Elínar Sigurðardóttirfulltrúi leikskólakennara
- Áshildur Hlín Valtýsdóttirfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Reglur um afslætti af gjaldskrám fræðslu- og uppeldismála
Málsnúmer 2013100162Fyrir fundinum lá tillaga til umræðu um nýjar reglur vegna afslátta á gjaldskrám leikskóla. Tillagan felur það í sér að sækja þurfi um alla afslætti af gjaldskrám og að afsláttarprósenta verði tekjutengd í tveimur þrepum. Sambærilegar reglur eru gildar í Hafnarfirði og í Mosfellsbæ.

Skólanefnd samþykkir að fela leikskólafulltrúa að vinna áfram að málinu með hliðsjón af umræðum á fundinum.

Skólastefna - endurskoðun
Málsnúmer 2014010001Núgildandi skólastefna Akureyrarbæjar var samþykkt árið 2005 með fororði um að hana skyldi endurskoða innan fimm ára. Síðan þá hafa lög um grunn- og leikskóla verið endurskoðuð og öllum skólastigum verið sett ný aðalnámskrá. Fyrir fundinum lá því tillaga um að ráðist verði í endurskoðun á skólastefnunni og því verki lokið á árinu 2014.

Skólanefnd samþykkir að fela fræðslustjóra að leita til Miðstöðvar skólaþróunar HA eftir samstarfi um verkefnið. Skólanefnd óskar eftir því að tillaga að verkáætlun verði lögð fyrir fund í febrúar 2014.

Viðurkenningar skólanefndar - endurskoðun
Málsnúmer 2014010003Á fundinum var tekin fyrir tillaga að endurskoðun á viðmiðunarreglum um viðurkenningar skólanefndar.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu með breytingum sem gerðar voru á fundinum.

Skólaval 2014
Málsnúmer 2014010002Fyrir fundinn var lögð tillaga að fyrirkomulagi skólavals í grunnskólum árið 2014.

Skólanefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til skólastjóra grunnskóla.