Velferðarráð - 1254
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1254
Nefndarmenn
- Róbert Freyr Jónssonvaraformaður
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- María Sigurbjörg Stefánsdóttirfundarritari
Öldrunarheimili Akureyrarbæjar - dagþjálfun
Málsnúmer 2015070050Lögð fram til kynningar skýrsla dagsett í maí 2017 frá Sjúkratryggingum Íslands um umfang og greiðslur fyrir þjónustu í dagdvöl fyrir aldraða árið 2016.
Gjafasjóður ÖA - samþykktir og gögn vegna umsóknar um endurgreiðslu vsk
Málsnúmer 2015120211Halldór S Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA lagði fram tillögu að breytingum á samþykktum Gjafasjóðs ÖA í samræmi við afgreiðslu á 12. lið velferðarráðs á fundi þann 24. maí sl.
Markmið breytinga á reglum sjóðsins er að rjúfa fjárhagsleg tengsl gefanda og þiggjanda eins og bent hefur verið á.Velferðarráð samþykkir tillögu að breytingum og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Stefnumótun og starfsáætlun velferðarráðs 2014-2018
Málsnúmer 2014090101Lögð fram til kynningar og umræðu drög að starfsáætlunum vegna ársins 2018 fyrir búsetusvið, fjölskyldusvið og Öldrunarheimili Akureyrar.
Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2017
Málsnúmer 2017010088Lögð fram rekstraryfirlit mála á sviði velferðarráðs fyrir tímabilið janúar til apríl 2017.
Fjárhagsáætlun 2018-2021
Málsnúmer 2017060040Lagðar fram forsendur og fjárhagsrammi sem bæjarráð hefur samþykkt vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2018-2021.
Samstarfssamningur milli SÁÁ og Akureyrarbæjar 2017
Málsnúmer 2017040007Beiðni frá SÁÁ áður á dagskrá 5. apríl og 24. maí sl. um endurnýjun á samstarfssamningi tekin fyrir að nýju.
Velferðarráð samþykkir að endurnýja samstarfssamning til tveggja ára 2017-2018 með fjárframlagi kr. 5.400.000 á ári.
Innan þess tíma verði framtíðaraðkoma bæjarins að rekstri SÁÁ á Akureyri ákveðin.Fjölskyldusvið - ársskýrslur 2016-2018
Málsnúmer 2017060012Lögð fram til kynningar ársskýrsla fjölskyldusviðs fyrir árið 2016.
Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - leiguverð
Málsnúmer 2012110070Tekin fyrir að nýju málefni leiguíbúða bæjarins m.t.t. hækkunar leiguverðs.
Lögð fram tillaga Jóns Heiðars Daðasonar húsnæðisfulltrúa fjölskyldusviðs dagsett 1. júní 2017.
Jón Heiðar Daðason sat fundinn undir þessum lið.Málinu frestað til næsta fundar.