Bæjarráð - 3474
- Kl. 08:30 - 11:25
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3474
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Margrét Kristín Helgadóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016-2019
Málsnúmer 2015040196Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Einnig sátu bæjarfulltrúarnir Eva Hrund Einarsdóttir D-lista og Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2015
Málsnúmer 2015040016Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til ágúst 2015.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerðir 2015
Málsnúmer 2015010101Lagðar fram fundargerðir 84., 85. aðalfundar, 86. og 87. fundar hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dagsettar 7. og 15. apríl, 5. maí og 8. september 2015. Fundargerðirnar má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdir-2014-2015Fundargerðir 84., 85. og 86. fundar eru lagðar fram til kynningar í bæjarráði auk 1., 2., 4. og 6. liðar í fundargerð 87. fundar.
Bæjarráð vísar 3. lið í fundargerð 87. fundar til framkvæmdadeildar og 5. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar.
Matthías Rögnvaldsson L-lista vék af fundi kl. 10:43.