Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 824
- Kl. 13:00 - 13:15
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 824
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Goðanes 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021031760Erindi dagsett 23. mars 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Akurbergs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir iðnaðarhúsnæði á lóð nr. 5 við Goðanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 28. júlí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Búðartangi 8 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021032209Erindi dagsett 30. mars 2021 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Vals Þórs Marteinssonar sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 8 við Búðartanga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomin ný gögn 23. júlí 2021.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Steindórshagi 1-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021070165Erindi dagsett 2. júlí 2021 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd HHS verktaka ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 1-7 við Steindórshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson. Innkomnar nýjar teikningar 26. júlí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Lækjargata 2A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021070278Erindi dagsett 5. júlí þar sem Prodomo ehf., kt. 640507-3300, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 2a við Lækjargötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Róbert Svavarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Breiðholtsvegur 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Reiðgerði
Málsnúmer 2021071014Erindi dagsett 20. júlí 2021 þar sem Bjarni Þór Einarsson fyrir hönd Hestamannafélagsins Léttis sækir um byggingarleyfi til að reisa reiðgerði í hesthúsahverfi í Breiðholti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Bjarna Þór Einarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.