Bæjarstjórn - 3396
- Kl. 16:00 -
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3396
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonforseti bæjarstjórnar
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Preben Jón Pétursson
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Logi Már Einarsson
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
- Dagný Magnea Harðardóttirskrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018
Málsnúmer 2014060234Lögð fram tillaga V-lista um tímabundna breytingu á skipan aðal- og varafulltrúa í skipulagsnefnd og breytingu á skipan varamanns í samfélags- og mannréttindaráði. Einnig lögð fram ósk um tímabundið leyfi varabæjarfulltrúa:
Vilberg Helgason tekur tímabundið sæti aðalmanns í skipulagsnefnd frá 1. september 2016 til og með 15. janúar 2017 af Edward H. Huijbens. Sóley Björk Stefánsdóttir tekur tímabundið sæti varamanns í skipulagsnefnd frá 1. september 2016 til og með 15. janúar 2017 af Vilberg Helgasyni.
Sóley Björk Stefánsdóttir tekur sæti varamanns í samfélags- og mannréttindaráði í stað Árna Steinars Þorsteinssonar.
Einnig lögð fram tillaga V-lista um að veita Edward H. Huijbens tímabundið leyfi frá störfum varabæjarfulltrúa frá 1. september 2016 til og með 15. janúar 2017.
Lögð fram tillaga L-lista um breytingu á skipan varafulltrúa í barnaverndarnefnd:
Matthías Rögnvaldsson tekur sæti varamanns í barnaverndarnefnd í stað Önnu Hildar Guðmundsdóttur.
Lögð fram tillaga að breytingu á aðal- og varafulltrúum í Eyþingi, samtökum sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.
Sigríður Huld Jónsdóttir tekur sæti aðalfulltrúa í stað Bjarka Ármanns Oddssonar.
Preben Jón Pétursson tekur sæti aðalfulltrúi í stað Margrétar Kristínar Helgadóttur.
Dagbjört Pálsdóttir tekur sæti varamanns í stað Sigríðar Huldar Jónsdóttur.
Anna Hildur Guðmundsdóttir tekur sæti varamanns í stað Dags Fannars Dagssonar.
Víðir Benediktsson tekur sæti varamanns í stað Tryggva Þórs Gunnarssonar.Bæjarstjórn samþykkir framlagðar tillögur með 11 samhljóða atkvæðum.
Rangárvellir - umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Málsnúmer 20160701148. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 24. ágúst 2016:
Erindi dagsett 25. júlí 2016 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Norðurorku hf.,
kt. 550978-0169, sækir um deiliskipulagsbreytingu fyrir Rangárvelli. Meðfylgjandi er tillaga að deiliskipulagsbreytingu dagsett 12. ágúst 2016.
Skipulagsnefnd samþykkir að deiliskipulagstillagan verði grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Edward Hákon Huijens V-lista tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.
Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018 - Melgerðisás
Málsnúmer 201606006811. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 24. ágúst 2016:
Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu dagsett 19. ágúst 2016 vegna breytingar á aðalskipulagi vegna þéttingar byggðar við Melgerðisás. Tillagan er unnin af Árna Ólafssyni hjá Teiknistofu Gylfa Guðjónssonar og félaga.
Skipulagsnefnd samþykkir að leita umsagnar Skipulagsstofnunar á skipulagslýsingunni og kynna hana fyrir almenningi í samræmi við 30. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar um bókun: Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir að leita umsagnar Skipulagsstofnunar um skipulagslýsingu aðalskipulagsbreytingar fyrir Melgerðisás dagsettri 19. ágúst 2016 og kynna fyrir almenningi í samræmi við 30. grein skipulagslaga nr. 123/2010.Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.
Akstursíþrótta- og skotsvæði - stígur á skotsvæði - deiliskipulagsbreyting
Málsnúmer 201608000613. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 24. ágúst 2016:
Erindi dagsett 4. ágúst 2016 þar sem Bergur Steingrímsson hjá Eflu fyrir hönd Fallorku ehf., kt. 600302-4180, óskar eftir breytingu á deiliskipulagi akstursíþrótta- og skotsvæðis á Glerárdal. Skipulagsnefnd heimilaði umsækjanda þann 10. ágúst 2016 að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Tillagan er dagsett 24. ágúst 2016 og unnin af Ómari Ívarssyni hjá Landslagi ehf. Samþykki Skotfélags Akureyrar liggur fyrir dagsett 17. ágúst 2016.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða samþykkir skipulagsnefnd að grenndarkynna erindið.
Þar sem samþykki nágranna liggur fyrir telst grenndarkynningu lokið. Skipulagsnefnd samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og málinu lokið samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.
Mannauðsstefna Akureyrarbæjar - endurskoðun
Málsnúmer 20151201682. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 25. ágúst 2016:
Lögð fram drög að endurskoðaðri mannauðsstefnu Akureyrarbæjar.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri, Ingunn Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri starfsþróunar og Birna Eyjólfsdóttir mannauðsráðgjafi sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar drögum að endurskoðaðri mannauðsstefnu Akureyrarbæjar til bæjarstjórnar.Bæjarstjórn samþykkir framlagða mannauðsstefnu Akureyrarbæjar með 11 samhljóða atkvæðum.
Árshlutareikningur A-hluta Akureyrarbæjar 2016
Málsnúmer 20160801022. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 1. september 2016:
Lagt fram óendurskoðað 6 mánaða uppgjör A-hluta Akureyrarbæjar.
Hólmgrímur Bjarnason og Aðalsteinn Sigurðsson endurskoðendur frá Deloitte ehf, Ingibjörg Ólöf Isaksen bæjarfulltrúi og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar 6 mánaða uppgjöri A-hluta Akureyrarbæjar til umræðu í bæjarstjórn.Almennar umræður.