Bæjarráð - 3431
- Kl. 08:00 - 10:15
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3431
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Matthías Rögnvaldsson
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2015 - framkvæmdir
Málsnúmer 2014060172Farið yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á árinu 2015.\nHelgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur, Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar, Dagur Fannar Dagsson formaður framkvæmdaráðs/stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarstjóri vék af fundi kl. 09:02.$line$Matthías Rögnvaldsson L-lista vék af fundi kl. 09:24.$line$Sigríður Huld Jónsdóttir S-lista vék af fundi kl. 09:43.
GáF ehf - aðalfundarboð
Málsnúmer 2014100038Lagður fram tölvupóstur dagsettur 1. október 2014 þar sem boðað er til aðalfundar GáF ehf fyrir árin 2012 og 2013 fimmtudaginn 16. október 2014, kl. 13:30 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík.\nOddur Helgi Halldórsson stjórnarmaður í GáF ehf mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar Oddi Helga komuna á fundinn.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

Menningarfélagið Hof ses - aðalfundur 2014
Málsnúmer 2014100019Erindi dagsett 1. október 2014 frá stjórn Menningarfélagsins Hofs þar sem boðað er til aðalfundar þann 23. október nk. kl. 12:10 í Hömrum í Hofi.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

Norðurorka hf - hluthafafundur
Málsnúmer 2014100004Lagt fram erindi dagsett 30. september 2014 frá stjórn Norðurorku hf þar sem boðað er til hluthafafundar mánudaginn 20. október nk. kl. 17:00 í húsnæði Norðurorku að Rangárvöllum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2014
Málsnúmer 2014010020Lögð fram til kynningar fundargerð 819. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 24. september 2014. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

Vinnuhópur um uppbyggingu legudeilda við Sjúkrahúsið á Akureyri
Málsnúmer 2014090300Erindi dagsett 26. september 2014 frá velferðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir f.h. heilbrigðisráðherra tilnefningu Akureyrarbæjar í vinnuhóp um uppbyggingu legudeilda við Sjúkrahúsið á Akureyri. Athygli er vakin á að þegar tilnefnt er í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli tilnefna bæði karl og konu. Ráðherra skipar í vinnuhópinn og velur úr tilnefningu svo kynjaskipting sé sem jöfnust.
Bæjarráð tilnefnir þau Eirík Björn Björgvinsson bæjarstjóra og Sigríði Huld Jónsdóttur formann félagsmálaráðs í vinnuhópinn.