Skólanefnd - 19
- Kl. 13:30 - 16:15
- Hof
- Fundur nr. 19
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Hanna Dögg Maronsdóttir
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Starfsemi tónlistarskólans og samstarf hans við grunnskólana haustið 2017
Málsnúmer 2016120031Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri tónlistarskólans, Guðrún Ingimundardóttir aðstoðarskólastjóri og Una Björg Hjartardóttir deildarstjóri komu á fundinn og fóru yfir starfsemi tónlistarskólans veturinn 2016-2017 og hugmyndir um samstarf við grunnskólana haustið 2017.
Skólanefnd þakkar þeim Hjörleifi, Guðrúnu og Unu Björgu kærlega fyrir kynninguna.Rekstur fræðslumála janúar - október 2016
Málsnúmer 2016030017Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir rekstur fræðslumála janúar - október 2016.
Lokun frístundar í vetrarfríi
Málsnúmer 2016080060Skólanefnd samþykkir að opnunartími frístundar í vetrarfríi verði á hefðbundnum tíma frá kl. 13 - 16. Frístund verður ekki opnuð að morgni vetrarfrísdaga. Tillagan tekur gildi í vetrarfríi 2017.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna "barnvænt sveitarfélag"
Málsnúmer 2015040236Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála mætti á fundinn og kynnti innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og hugmyndina um 'barnvænt sveitarfélag'.
Skólanefnd þakkar Ölfu fyrir góða og athyglisverða kynningu.Áskorun til bæjaryfirvalda um að fjölga leikskólaplássum
Málsnúmer 2016110148Neðangreind áskorun um fjölgun leikskólaplássa barst bæjaryfirvöldum þann 23. nóvember sl.:
'Við undirrituð skorum á bæjarstjórn, skólanefnd og aðra hlutaðeigandi að endurskoða stefnu Akureyrarbæjar í dagvistunarúrræðum barna í sveitarfélaginu.
Við skorum á bæjaryfirvöld að tryggja börnum frá a.m.k. 18 mánaða aldri aðgang að leikskólaplássi í sveitarfélaginu.
Jafnfram skorum við á bæjarstjórn að setja börn og skólamál í forgang við afgreiðslu fjárhagsáætlunar, enda hefur Akureyrarbær nýlega undirritað samkomulag um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en við innleiðingu sáttmálans er lögð rík áhersla á að sveitarfélög vinni fjárhagsáætlanir með þarfir barna að leiðarljósi (www.barnvaensveitarfelog.is).'
Undir þessa áskorun skrifar Þórunn Anna Elíasdóttir f.h. 365 foreldra á Akureyri.Leik- og grunnskólar taka inn nemendur einu sinni á ári sem þýðir að börn hefja leikskóladvöl á ólíkum aldri, eftir því hvenær þau eru fædd á árinu. Skólanefnd leggur áherslu á að frá og með hausti 2017 verði öll rými leikskólanna nýtt eins og kostur er og mönnun í samræmi við það.
Skólanefnd mun taka málið sérstaklega upp í tengslum við endurskoðun skólastefnu Akureyrarbæjar sem nú stendur yfir.Leikskólinn Pálmholt - erindi frá foreldraráði
Málsnúmer 2015110055Erindi dagsett 1. desember 2016 frá foreldraráði Pálmholts varðandi ástand leiktækja og aðbúnað á skólalóð Pálmholts. Í erindu vísar foreldraráðið til tölvupósts sem sendur var skóladeild 19. október 2015. Foreldraráðið ítrekar beiðni sína um að skóladeild taki þessi mál til skoðunar eins fljótt og kostur er, þar sem lítið hefur miðað í þessum málum og þörf úrbóta nú enn brýnni en áður var.
Erindinu er vísað til Fasteigna Akureyrarbæjar. Skólanefnd leggur áherslu á að farið sé í nauðsynlegar úrbætur og felur fræðslustjóra að fylgja málinu eftir.
Stjórnsýslubreytingar - sérfræðiþjónusta leik- og grunnskóla
Málsnúmer 2016110021Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri gerði grein stöðu mála varðandi flutning sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla til skóladeildar við upphaf árs 2017.
Náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum á Akureyri
Málsnúmer 2016110016Erindi sem barst í viðtalstíma bæjarfulltrúa 27. október 2016 og bæjarráð vísaði til skólanefndar.
Þuríður Lilja Rósenbergsdóttir námsráðgjafi í Oddeyrarskóla mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa og spurði hver væri sýn bæjaryfirvalda varðandi náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum bæjarins.Sýn skólanefndar er sú að allir grunnskólanemendur á Akureyri eiga að hafa aðgang að námsráðgjafa í sínum skóla ef þörf krefur. Ljóst er að þörf er á aukningu á stöðugildum náms- og starfsráðgjafa í skólum bæjarins og verður leitast við að bregðast við þeirri stöðu eins og mögulegt er á komandi misserum.