Íþróttaráð - 199
- Kl. 14:00 - 16:06
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 199
Nefndarmenn
- Árni Óðinssonvaraformaður
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Alfa Dröfn Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonframkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings
Málsnúmer 2015030205Lagðar fram til kynningar hugmyndir að framkvæmdum á félagssvæði Nökkva.
Íþróttaráði líst vel á framkomnar hugmyndir á félagssvæði Nökkva.
Íþróttaráð óskar eftir framkvæmda- og kostnaðaráætlun frá Fasteignum Akureyrarbæjar.Naustaskóli - íþróttahús
Málsnúmer 2015020029Íþróttaráð heimsótti mannvirkið og skoðaði aðstæður eftir framkvæmdir.
Íþróttaráð þakkar fyrir góðar móttökur í nýju og glæsilegu íþróttahúsi Naustaskóla.
Íþróttaráð leggur til að fallið verði frá tillögum aðgerðahóps bæjarráðs varðandi opnunartíma íþróttahús Naustaskóla og að íþróttahúsið verði tekið í almenna notkun utan skólatíma frá og með 1. janúar 2017.
Íþróttaráð óskar eftir heimild bæjarráðs til að áætla aukið fjármagn til reksturs mannvirkisins árið 2017.
Skautahöllin - nýtt svell
Málsnúmer 2015020134Íþróttaráð heimsótti mannvirkið og skoðaði aðstæður eftir endurbætur.
Íþróttaráð fagnar því að nýtt og glæsilegt skautasvell er komið í notkun í Skautahöll Akureyrar.
Íþróttaráð þakkar Jóni Benedikt Gíslasyni framkvæmdastjóra SA fyrir skoðunarferðina um mannvirkið.Boginn - endurnýjun á gervigrasi
Málsnúmer 2015120126Íþróttaráð heimsótti mannvirkið og skoðaði aðstæður eftir endurbætur.
Íþróttaráð fagnar glæsilegum endurbótum í Boganum.
Íþróttaráð þakkar Valdimari Pálssyni framkvæmdastjóra Þórs fyrir mótttökurnar.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis
Málsnúmer 2014020207Íþróttaráð heimsótti mannvirkið og skoðaði framkvæmdir.
Íþróttaráð þakkar Elínu H. Gísladóttur forstöðumanni Sundlaugar Akureyrar fyrir móttökurnar.