Ungmennaráð - 54
- Kl. 16:00 - 18:00
- Rósenborg
- Fundur nr. 54
Nefndarmenn
- Fríða Björg Tómasdóttir
- Heimir Sigurpáll Árnason
- Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
- París Anna Bergmann Elvarsd.
- Bjarki Orrason
- Arna Lísbet Ásgeirsdóttir
- Aldís Ósk Arnaldsdóttir
- Leyla Ósk Jónsdóttir
- Rebekka Rut Birgisdóttir
- Ólöf Berglind Guðnadóttir
- Íris Ósk Sverrisdóttir
Starfsmenn
- Hafsteinn Þórðarsonumsjónarmaður ungmennaráðs ritaði fundargerð
- Arnar Már Bjarnasonforvarna- og félagsmálafulltrúi
- Ari Orrasonforvarna- og félagsmálafulltrúi
Ungmennaráð - kosningar
Málsnúmer 2023090217Nýir fulltrúar voru boðnir velkomnir á sinn fyrsta fund með ungmennaráði og kjör þeirra var staðfest.
Áfram sitja í ráðinu:
Heimir Sigurpáll Árnason
Fríða Björg Tómasdóttir
Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
París Anna Bergmann Elvarsdóttir
Nýir fulltrúar eru:
Aldís Ósk Arnaldsdóttir
Arna Lísbet Ásgeirsdóttir
Bjarki Orrason
Íris Ósk Sverrisdóttir
Leyla Ósk Jónsdóttir
Ólöf Berglind Guðnadóttir
Rebekka Rut BirgisdóttirUngmennaráð - kynningar og fræðsla
Málsnúmer 2024080360Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og frístundadeildar kynnti sig og deildina.
Ungmennaráð - Barnvænt sveitarfélag 2024-2027
Málsnúmer 2024080352Ungmennaráð var upplýst um stöðuna á verkefninu Barnvænt sveitarfélag og hlutverk þeirra í því skýrt. Allt sem þau gera á fundum eða verkefni sem þau taka þátt í hafa bein og óbein jákvæð áhrif á verkefnið. Rætt um fræðslunámskeiðin sem ætlast er til þess að þau ljúki og sendi inn viðurkenningarskjöl því til staðfestingar. Valið var um fulltrúa í stýrihóp um Barnvænt sveitarfélag og munu Fríða Björg Tómasdóttir, Leyla Ósk Jónsdóttir, Lilja Dögun Lúðvíksdóttir, Ólöf Berglind Guðnadóttir og Rebekka Rut Birgisdóttir sitja í hópnum fyrir hönd ungmennaráðs.
Innra mats skýrslur - grunnskólar
Málsnúmer 2023060725Kynntar voru niðurstöðum úr gæðamati grunnskóla.
Starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023-2024
Málsnúmer 2022080363Uppfærð starfsáætlun fyrir fræðslu- og lýðheilsuráð var kynnt í ungmennaráði.
Ungmennaráð - breytingar í nefndum og kosning áheyrnarfulltrúa 2022-2024
Málsnúmer 2022030297Kosið var um hlutverk áheyrnarfulltrúa, bæði aðal- og vara, í fræðslu- og lýðheilsuráði og umhverfis- og mannvirkjaráði. Rætt var um hlutverkin og skipulag varðandi fundi.
Greitt er fyrir fundarsetu í ráðunum. París Anna Bergmann Elvarsdóttir og Bjarki Orrason verða áheyrnarfulltrúar í fræðslu- og lýðheilsuráði. Heimir Sigurpáll Árnason og Leyla Ósk Jónsdóttir verða áheyrnarfulltrúar í umhverfis- og mannvirkjaráði.Ungmennaþing SSNE 2024
Málsnúmer 2024090049Kynnt var fyrir ungmennaráði Ungmennaþing SSNE 2024 sem fer fram daganna 14. til 15. október í Þingeyjarsveit. Fjórir fulltrúar ungmennaráðs voru valdir til þess að fara á þingið fyrir hönd ungmennaráðs.
Ungmennaráðstefna UMFÍ - ungt fólk og lýðræði
Málsnúmer 2024090047Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði dagana 20.- 22. september á Reykjum í Hrútafirði og er yfirskrift ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðheilsa. Ráðstefnan var kynnt fyrir ungmennaráði og fara fjórir fulltrúar á ráðstefnuna frá ungmennaráði.
Ungmennaráð - önnur mál
Málsnúmer 2022120502Kynnt var fyrir ungmennaráði vinnustofa um aðlögun Akureyrarbæjar að lofslagsbreytingum. Fjórir fulltrúar ætla að taka þátt.