Öldungaráð - 43
15.01.2025
Hlusta
- Kl. 13:00 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 43
Nefndarmenn
- Hjálmar Pálssonformaður
- Hildur Brynjarsdóttir
- Brynjólfur Ingvarsson
- Hallgrímur Gíslasonfulltrúi EBAK
- Úlfhildur Rögnvaldsdóttirfulltrúi EBAK
- Þorgerður Jóna Þorgilsdóttirfulltrúi EBAK
- Eva Björg Guðmundsdóttirfulltrúi HSN
Starfsmenn
- Birna Guðrún Baldursdóttirforstöðumaður tómstundamála ritaði fundargerð
Lýðheilsukort - tilraunaverkefni 2022-2024
Málsnúmer 2022101039Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar kynnti hreyfikortið.
Öldungaráð þakkar Kristínu fyrir góða kynningu.
Strætó - jöfnunarstoppistöð á nýjum stað
Málsnúmer 2022120685Engilbert Ingvarsson rekstrarstjóri strætisvagna kynnti til umsagnar jöfnunarstöð á nýjum stað og fyrirhugaðar breytingar á leiðakerfi strætó.
Öldungaráð þakkar Engilbert fyrir góða kynningu og þakkar sérstaklega fyrir að tekið var tillit til ábendinga frá eldri borgurum. Öldungaráði líst vel á fyrirhugaðar breytingar á leiðakerfi en vill þó benda á mikilvægi þess að hugað sé að aðgengi og gönguleiðum til og frá stoppistöðvum t.d. í kringum Birtu og Sölku og norðan Glerártorgs.
Starfsáætlun öldungaráðs 2025
Málsnúmer 2025010727Starfsáætlun öldungaráðs 2025.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.