Umhverfis- og mannvirkjaráð - 182
- Kl. 09:40 - 11:22
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 182
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Bjarney Sigurðardóttirvaraformaður
- Þórhallur Harðarson
- Ingimar Eydal
- Hilda Jana Gísladóttir
- Halla Birgisdóttir Ottesenáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
- Íris Ósk Sverrisdóttiráheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
- Brynjar Hólm Grétarssonverkefnastjóri
European City Facility - styrkur til þróunar á fjárfestingum í orkuskiptum
Málsnúmer 2024051764Karen M. Kristjánsdóttir, Head of Energy & Sustainability hjá Eim, mætti á fundinn og kynnti verkefni í tengslum við styrk sem Akureyrarbær hefur hlotið úr European City Facility sjóðnum.
Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar, Katla Eiríksdóttir verkefnastjóri úrgangs- og loftslagsmála og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftslagsmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.
LOFTUM - loftslags- og umhverfisfræðsla
Málsnúmer 2025031425Ingunn Helga Bjarnadóttir hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og Sigurborg Ósk Haraldsdóttir hjá SSNE kynntu loftslags- og umhverfisfræðsluverkefnið LOFTUM.
Katla Eiríksdóttir verkefnastjóri úrgangs- og loftslagsmála og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftslagsmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.
Hlíðarfjall - rekstur skíðaleigu
Málsnúmer 2021102299Lagt fram erindi vegna framlengingar á samningi um rekstur skíðaleigu í Hlíðarfjalli. Samingurinn gildir til 31. maí 2025 og er með framlengingarákvæði um eitt ár.
Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli og Jónas Stefánsson svæðisstjóri í Hlíðarfjalli sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði samningsins um rekstur skíðaleigu í Hlíðarfjalli og felur forstöðumanni Hlíðarfjalls að ganga frá framlengingu á samningi.
Hlíðarfjall - rekstur skíða- og brettaskóla 2022-2026
Málsnúmer 2022100748Tekin fyrir framlenging á samningi um rekstur skíða- og brettaskóla í Hlíðarfjalli. Samningurinn rennur út 1. maí 2025.
Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli og Jónas Stefánsson svæðisstjóri í Hlíðarfjalli sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði samningsins og felur forstöðumanni Hlíðarfjalls að ganga frá framlengingu samningsins til tveggja ára.
Móahverfi - gatnagerð og lagnir - áfangi 2
Málsnúmer 2024120983Lagt fram minnisblað dagsett 27. mars 2025 vegna opnunar tilboða í kaup á möl fyrir áfanga 2 vegna framkvæmda við Móahverfi. Þrjú tilboð bárust.
Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda og viðhalds gatna sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningi við Skútaberg ehf.
Fylgiskjöl
Malbikun 2025 - viðhald og nýframkvæmdir
Málsnúmer 2025020492Lagt fram minnisblað dagsett 27. mars 2025 vegna opnunar tilboða í malbikun sumarið 2025. Tvö tilboð bárust í hvorn flokk.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli fyrirliggjandi tilboða og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningi við Malbikun Akureyrar ehf.
Fylgiskjöl
Utanhússmálun og múrviðgerðir 2025
Málsnúmer 2025031427Lagt fram minnisblað dagsett 28. mars 2025 vegna opnunar tilboða í utanhússmálun og múrviðgerðir á Brekkuskóla, Giljaskóla og Kiðagili sumarið 2025. Tilboð bárust frá fjórum aðilum í ofantalin verk.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli fyrirliggjandi tilboða og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningum við Dragan Pavlica vegna Brekkuskóla og Giljaskóla og við Málningarfélagið ehf. vegna Kiðagils.
Fylgiskjöl
Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur - lagnir
Málsnúmer 2024030763Lagt fram minnisblað dagsett 27. mars 2025 vegna opnunar tilboða í lagnir og raflagnir í knattspyrnuvöll á Þórssvæðinu. Tvo tilboð bárust í lagnir og fjögur í raflagnir.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs Lagnastýringar ehf. í lagnir og lægstbjóðanda Rafeyri ehf. í raflagnir og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningum.
Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur - girðing
Málsnúmer 2024030763Lagt fram minnisblað dagsett 27. mars 2025 vegna opnunar tilboða í girðingu við knattspyrnuvöll á Þórssvæðinu. Fjögur tilboð bárust.
Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda VF verktaka ehf. á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá samningi.