Velferðarráð - 1382
- Kl. 14:00 - 15:34
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1382
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Guðbjörg Anna Björnsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Anna Marit Níelsdóttirforstöðumaður í félagsþjónustu
- Hanna Rún Hilmarsdóttirfundarritari
Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2023
Málsnúmer 2023100247Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup fyrir árið 2023 lagðar fram til kynningar. Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð telur mikilvægt að gerð verði ítarlegri könnun á þjónustu við eldri borgara og fatlað fólk. Velferðarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2024
Málsnúmer 2024020136Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur velferðarsviðs eftir fyrsta mánuð ársins 2024. Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Húsnæðisúrræði fyrir heimilislaust fólk með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2023100306Lagt fram minnisblað dagsett 28. febrúar 2024 um stöðu í málefnum heimilislausra með fjölþættan vanda.
Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Lautin - húsnæðismál
Málsnúmer 2024021272Lagt fram minnisblað dagsett 28. febrúar 2024 um þarfir Lautarinnar er varðar húsnæði. Ólafur Örn Torfason forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð óskar eftir því að starfsemi Lautarinnar verði fundið hentugra húsnæði þar sem núverandi húsnæði er of stórt og hentar ekki starfseminni. Velferðarráð vísar málinu til bæjarráðs.
Samræmd móttaka flóttafólks
Málsnúmer 2023021331Lögð fram til samþykktar drög að samningi við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks.
Velferðarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.
Starfsendurhæfing Norðurlands - tilnefning fulltrúa í stjórn
Málsnúmer 2024021283Starfsendurhæfing Norðurlands óskar eftir tilnefningu frá Akureyrarbæ í stjórn félagsins.
Akureyrarbær tilnefnir Önnu Marit Níelsdóttur sem aðalfulltrúa og Karólínu Gunnarsdóttur sem varamann.