Velferðarráð - 1397
- Kl. 14:00 - 15:49
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 1397
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Guðbjörg Anna Björnsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Tinna Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Ingólfur Örn Helgasonfundarritari
Okkar heimur góðgerðarsamtök - styrkbeiðni til velferðarráðs
Málsnúmer 2024101030Á fundi velferðarráðs 27. nóvember 2024 var afgreiðslu styrkbeiðnar frestað og óskað eftir frekari upplýsingum.
Aðstandendum verkefnisins var boðið að koma á fund ráðsins. Sigríður Gísladóttir og Elísabet Ýrr Steindórsdóttir frá Okkar heimi sátu fundinn undir þessum lið og kynntu verkefnið.Velferðarráð þakkar góða kynningu á verkefninu. Velferðarráð er tilbúið að styrkja verkefnið um kr. 400. 000 með þeim fyrirvara að fyrir liggi að verkefnið sé að fullu fjármagnað og ljóst að það fari af stað.
Fræðsluáætlun velferðarsviðs - fræðslustjóri að láni
Málsnúmer 2024051761Kynning á fræðsluáætlun velferðarsviðs. Ingunn H. Bjarnadóttir og Sigurlaug Indriðadóttir Unnardóttir frá Símey sjá um kynninguna.
Áfrýjanir vegna styrkja vegna náms og verkfæra og tækjakaupa
Málsnúmer 2025010110Lögð fram áfrýjun vegna umsóknar um styrk vegna náms og verkfæra og tækjakaupa. Aðalbjörg Guðný Árnadóttir ráðgjafi í málaflokki fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.
Áfrýjun vegna styrkumsóknar og afgreiðsla hennar færð í trúnaðarbók.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2024-2025
Málsnúmer 2024120543Lagðar fram til samþykktar breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.
Guðni Örn Hauksson húsnæðisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar.