Velferðarráð - 1394
- Kl. 14:00 - 15:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1394
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Guðbjörg Anna Björnsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Tinna Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Ingólfur Örn Helgasonfundarritari
Lífsgæðakjarni fyrir eldri borgara
Málsnúmer 2023090027Lögð fram til kynningar skýrsla vinnuhóps vegna uppbyggingar á lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara.
Hulda Elma Eysteinsdóttir bæjarfulltrúi sat í vinnuhópnum og kynnti skýrsluna ásamt Karli Erlendssyni formanni Ebak.NPA - tímagjald 2025
Málsnúmer 2024090146Lagt fram til samþykktar nýtt tímagjald í NPA þjónustu fyrir árið 2025.
Velferðarráð samþykkir tímagjald í NPA þjónustu fyrir árið 2025.
Samstarfssamningur um þjónustu Grófarinnar á Akureyri
Málsnúmer 2023100644Lagður fram til samþykktar samstarfssamningur um þjónustu Grófarinnar á Akureyri.
Samstarfssamningur um þjónustu Grófarinar á Akureyri var ekki samþykktur, heldur lagður fram til frekari skoðunar.
Innleiðing á endurskoðuðu örorkulífeyriskerfi - samningur samstarfsaðila
Málsnúmer 2024101028Lagður fram til kynningar samningur um samstarf þjónustuaðila á sviði endurhæfingar.
Munum leiðina - fjólublái bekkurinn
Málsnúmer 2024110079Tekið fyrir erindi frá Alzheimersamtökunum þar sem bent er á verkefnið "Fjólublái bekkurinn" sem er áminning um vitundarvakningu Alzheimersamtakanna.
Velferðarráð tekur vel í að komið verði upp fjólubláum bekk í bænum sem áminningu um vitundarvakningu Alzheimersamtakanna. Málinu vísað áfram til umhverfis- og mannvirkjasviðs til frekari vinnslu.
Velferðarráð - fundaáætlun 2023 - 2025
Málsnúmer 2022110653Lögð fram drög að fundaáætlun velferðarráðs fyrir árið 2025.