Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 990
- Kl. 09:00 - 09:15
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 990
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
- Ólafur Elvar Júlíussonverkefnastjóri byggingarmála
- Katrín Rós Ívarsdóttirverkefnastjóri fasteignaskráningar
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
Hafnarstræti 75 - umsókn um byggingarleyfi - niðurrif
Málsnúmer 2024100357Erindi dagsett 9. október 2024 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Hótels Akureyrar ehf. sækir um niðurrif á húsi nr. 75 við Hafnarstræti.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. mannvirkjalaga.
Gleráreyrar 1, rými 15, Skor - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2024061639Erindi dagsett 18. október 2024 þar sem Svava Björk Bragadóttir f.h. Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir minniháttar breytingum innanhúss á rými 15 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Innkomin gögn eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Gránufélagsgata 51 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021041271Erindi dagsett 26. apríl 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd VN Fasteigna ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á húsi á lóð nr. 51 við Gránufélagsgötu. Meðfylgjandi eru teikningar dags. 23. október eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Ránargata 9 - fyrirspurn um byggingaráform
Málsnúmer 2024100188Erindi dagsett 3. október 2024 þar sem Sólveig Jóhannsdóttir óskar eftir að Ránargata 9 verði skráð sem einbýlishús.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.