Velferðarráð - 1386
- Kl. 14:00 - 15:10
- Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
- Fundur nr. 1386
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Guðbjörg Anna Björnsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Tinna Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- Ingólfur Örn Helgasonfundarritari
Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2025 - 2028
Málsnúmer 2024050001Fjárhagsáætlunarferli fyrir árið 2025 lagt fram til kynningar.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Viðauki í stoðþjónustu 2024
Málsnúmer 2024031388Lögð var fram til seinni umræðu beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt var til að hækka fjárhagsáætlun stoðþjónustu, NPA og notendasamninga og þjónustukaup í sameiginlegum kostnaði í málaflokki fatlaðs fólks um upphæð kr. 88.800.000 vegna ársins 2024.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Velferðaráð samþykkir beiðnina fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.
Samningur um þjónustu við fatlað fólk í Eyjafirði
Málsnúmer 2023090320Lögð fram drög að samningi Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar og Svalbarðsstrandarhrepps um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk.
Velferðarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Grímsey - félagslegt leiguhúsnæði
Málsnúmer 2024050002Lagt var fram minnisblað Guðna Haukssonar húsnæðisfulltrúa dagsett 22. mars 2024 varðandi félagslegt leiguhúsnæði í Grímsey. Lagt til að húsnæði bæjarins í eyjunni sem nú er rekið sem félagslegt húsnæði verði rekið á öðrum forsendum eða selt út úr kerfinu.
Umrætt húsnæði í Grímsey hefur ekki verið notað sem félagslegt leiguhúsnæði. Velferðarráð sér ekkert því til fyrirstöðu að húsnæðið sé selt. Málinu vísað til bæjarráðs.
Málaflokkur fatlaðs fólks - nauðung og þvingun sbr. lög nr. 88/2011
Málsnúmer 2024050003Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fóru yfir stöðu innra eftirlits er varðar nauðung og þvingun á velferðarsviði.
Velferðarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að láta gera óháða úttekt á verkferlum Akureyrarbæjar í tengslum við V. kafla laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011 og að í kjölfarið verði gerðar viðeigandi tillögur að úrbótum.
Kolfinna María Níelsdóttir S-lista, Snæbjörn Guðjónsson V-lista, Guðbjörg Anna Björnsdóttir B-lista og Tinna Guðmundsdóttir F-lista óska bókað:
Mikilvægt er að umrædd óháð úttekt og tillögur til úrbóta verði til þess að Akureyrarbær geri ekki mistök við beitingu nauðungar í þjónustu við fatlað fólk.