Fræðslu- og lýðheilsuráð - 54
- Kl. 13:00 - 14:50
- Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
- Fundur nr. 54
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Bjarney Sigurðardóttir
- Gunnar Már Gunnarsson
- Tinna Guðmundsdóttir
- Rannveig Elíasdóttiráheyrnarfulltrúi
- Angantýr Ómar Ásgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Sylvía Dögg Hjörleifsdóttirverkefnastjóri grunnskóla
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Svæðisbundin farsældaráð - tillaga
Málsnúmer 2024051346Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri SSNE kynnti hugmyndir þar sem óskað er eftir heimild frá sveitarfélögum til að hefja vinnu við að gera drög að samningi um svæðisbundið farsældarráð fyrir Norðurland eystra.
Áheyrnarfulltrúar: Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Sóley Kjerúlf Svansdóttir fulltrúi leikskólakennara og París Anna Bergmann Elvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð veitir SSNE sína heimild til að hefja vinnu við að gera drög að samningi um svæðisbundið farsældarráð á Norðurlandi eystra.
Læsir - lestrarappið
Málsnúmer 2024060412Atli Sveinn Þórarinsson, Kjartan Stefánsson og Sigrún Björnsdóttir kynntu Læsi, snjallforrit sem hefur verið í þróun í þeim tilgangi að halda utan um heimalestur barna.
Áheyrnarfulltrúar: Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Sóley Kjerúlf Svansdóttir fulltrúi leikskólakennara og París Anna Bergmann Elvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar fyrir kynninguna og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
Ósk um viðauka vegna sérúrræða í grunnskólum haustið 2024
Málsnúmer 2024051277Önnur umræða vegna óskar um viðauka vegna sérúrræða í grunnskólum haustið 2024.
Áheyrnarfulltrúar: Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Sóley Kjerúlf Svansdóttir fulltrúi leikskólakennara og París Anna Bergmann Elvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir að óska eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2024 að fjárhæð kr. 20.000.000 vegna málsins. Málinu er vísað til bæjarráðs.
Samræmdar símareglur í grunnskólum Akureyrarbæjar - símafrí
Málsnúmer 2024051218Önnur umræða um viðaukabeiðni til kaupa á skápum og afþreyingarefni vegna samræmdra símareglna í grunnskólum Akureyrarbæjar.
Áheyrnarfulltrúar: Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Sóley Kjerúlf Svansdóttir fulltrúi leikskólakennara og París Anna Bergmann Elvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir að óska eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2024 að fjárhæð kr. 4.000.000 vegna málsins. Málinu er vísað til bæjarráðs.
Beiðni um aukið stjórnunarhlutfall í Lundarseli - Pálmholti
Málsnúmer 2024060410Beiðni frá stjórnendum í Lundarseli - Pálmholti um aukið hlutfall til stjórnunar í leikskólanum.
Áheyrnarfulltrúar: Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Sóley Kjerúlf Svansdóttir fulltrúi leikskólakennara og París Anna Bergmann Elvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð felur sviðsstjóra og rekstrarstjóra að endurmeta viðmið varðandi stöðuhlutfall aðstoðarskólastjóra í leikskólum bæjarins og vísar málinu til fjárhagsáætlunarvinnu.
Ársreikningar ÍBA og aðildarfélaga með rekstrarsamning við Akureyrarbæ
Málsnúmer 2023060136Í rekstrarsamningum Akureyrarbæjar við aðildarfélög ÍBA er kveðið á um að upplýsingar um rekstur félaganna skuli lagðar fram til kynningar fyrir ráðið.
Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála lagði fram til kynningar ársreikninga Golfklúbbs Akureyrar, Íþróttafélagsins Þórs, Knattspyrnufélags Akureyrar og Skautafélags Akureyrar, Hestamannafélagsins Léttis og Siglingarklúbbsins Nökkva fyrir árið 2023.
Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann Elvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Íþróttafélagið Þór - uppbygging á félagssvæði Þórs
Málsnúmer 2023031752Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála kynnti drög að samningi Akureyrarbæjar við Íþróttafélagið Þór varðandi framkvæmdir og uppbyggingu á gervigrassvæði á félagssvæði Þórs.
Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann Elvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar samningi til afgreiðslu í bæjarráði.
Barnvænt sveitarfélag - gátlistar
Málsnúmer 2023091180Barnvænt hagsmunamat lagt fram.
Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann Elvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar dagskrárliðum númer 1 og 2 til ungmennaráðs.