Öldungaráð - 39
- Kl. 13:00 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 39
Nefndarmenn
- Hjálmar Pálssonformaður
- Hildur Brynjarsdóttir
- Brynjólfur Ingvarsson
- Hallgrímur Gíslasonfulltrúi EBAK
- Úlfhildur Rögnvaldsdóttirfulltrúi EBAK
- Þorgerður Jóna Þorgilsdóttirfulltrúi EBAK
- Eva Björg Guðmundsdóttirfulltrúi HSN
Starfsmenn
- Birna Guðrún Baldursdóttirforstöðumaður tómstundamála ritaði fundargerð
Starfsáætlun öldungaráðs 2024
Málsnúmer 2022120098Hallgrímur Gíslason fór yfir starfsáætlun þriðja ársfjórðungs 2024.
Birta og Salka - matarmál
Málsnúmer 2024090814Farið yfir stöðu á afgreiðslu í mat í Birtu og fjölgun matardaga.
Birna Guðrún Baldursdóttir forstöðumaður sagði frá óbreyttu ástandi varðandi matarmálin og áfram verður eldað á stöðvunum einu sinni í viku líkt og verið hefurÖldungaráð hvetur enn og aftur til að allar mögulegar leiðir verði reyndar til að hægt verði að bjóða upp á heitan mat alla virka daga í félagsmiðstöðvunum.
Staðan í heimahjúkrun 2024
Málsnúmer 2024051404Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi HSN fór yfir hlutverk heimahjúkrunar og stöðuna sem er góð núna, engir biðlistar og staða í mönnunarmálum góð.
Salka - öryggismál í kjallara
Málsnúmer 2024091353Fulltrúar EBAK lýsa yfir áhyggjum af öryggismálum í kjallaranum í Sölku og hvetja til þess að vinnueftirlit, heilbrigðiseftirlit og eldvarnareftirlit verði fengið til að gera heildarúttekt á húsnæðinu vegna þeirrar starfsemi sem þar fer fram á vegum Akureyrarbæjar.
Öldungaráð tekur undir áhyggjur EBAK.
Birta og Salka - opnunartími félagsmiðstöðva fólksins
Málsnúmer 2024091352Rætt um opnunartíma félagsmiðstöðva fólksins.
Fulltrúar EBAK óska bókað: Félagsmiðstöðvar á Akureyri eru opnar kl. 9:00-15:45 yfir veturinn alla virka daga, en nú er bara opið til kl. 13:00 á föstudögum, sem er ákaflega slæmt. Í sambærilegum miðstöðvum annars staðar er opnunartíminn yfirleitt kl. 8:00-16:00 eða 8:30-16:30 alla virka daga eða í 40 klst. í viku, meðan hann er eingöngu 31,00 klst. hér á Akureyri. Öldungaráð hvetur til að opnunartími félagsmiðstöðvanna verði endurskoðaður í samstarfi við EBAK.
Frístundaakstur
Málsnúmer 2024091355Rætt um mögulegan akstur milli félagsmiðstöðva fólksins
Öldungaráð hvetur til að tilraunaverkefni með akstur frá Sölku að Birtu á fræðsluerindi eftir hádegi annan hvern mánudag, hefjist sem allra fyrst. Fljótlega verði einnig hugað að akstri á sömu leið í bingó á þriðjudögum.
Öldungaráð - önnur mál
Málsnúmer 2022100342Brynjólfur Ingvarsson sagði frá drögum að tillögum í búsetumálum eldri borgara á Akureyri.