Umhverfis- og mannvirkjaráð - 171
- Kl. 08:15 - 12:17
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 171
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Bjarney Sigurðardóttirvaraformaður
- Þórhallur Harðarson
- Ingimar Eydal
- Hilda Jana Gísladóttir
- Halla Birgisdóttir Ottesenáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Áfangastaðaáætlun Norðurlands - áhersluverkefni
Málsnúmer 2024100121Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála og María Helena Tryggvadóttir verkefnastjóri ferðamála sátu fundinn undir þessum lið og kynntu áfangastaðaáætlun fyrir Akureyrarbæ.
Ferðamálasjóður - umsóknir
Málsnúmer 2024051830Kynning á áætluðum umsóknum í Ferðamálasjóð, að bæta aðgengi og öryggi fyrir útivist í Hlíðarfjalli að sumarlagi og merkingar í Grímsey.
Einnig var kynning á hugmyndum um útsýnisstaði á þaki Hofs.
Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála og María Helena Tryggvadóttir verkefnastjóri ferðamála sátu fundin undir þessum lið.Fylgiskjöl
Fjárhagsáætlun UMSA - 2025
Málsnúmer 2024050867Lögð fram og kynnt drög að framkvæmdaáætlun fyrir árin 2025-2028.
Fuglatalning 2024 - Naustaflói
Málsnúmer 2024091320Lögð fram skýrsla um fuglalíf við Hundatjörn í Naustaflóa vorið 2024.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.Fylgiskjöl
Fráveita í Kjarnaskógi
Málsnúmer 2024100416Lagt fram minnisblað dagsett 14. október 2024 varðandi lausnir á fráveitu frá Hótel Kjarnalundi.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð telur mikilvægt að brugðist verði við hratt og örugglega og af fagmennsku, æskilegt er að framtíðarlausn verði komin á eigi síðar en fyrir lok árs 2025.
Ráðið styður bráðabirgðalausn númer eitt sem lögð er til í meðfylgjandi minnisblaði og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að vinna málið áfram í samræmi við það.Fylgiskjöl
Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2024-2025
Málsnúmer 2024091463Lagt fram minnisblað dagsett 15. október 2024 varðandi fjárfestingu í veghefli fyrir ýmis heilsársverkefni umhverfismiðstöðvar.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar, Engilbert Ingvarsson verkstjóri strætisvagna og ferliþjónustu og Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
Steinefni fyrir malbik og jöfnunarlag 2022-2024
Málsnúmer 2022030318Lagður fram viðauki við samning um kaup á steinefnum fyrir malbik og jöfnunarlag varðandi nýtingu framlengingarákvæðis núverandi samnings um eitt ár.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar og Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis og mannvirkjaráð samþykkir framlenginguna.
Boginn - lýsing
Málsnúmer 2023020043Lagt fram minnisblað dagsett 11. október 2024 varðandi endurnýjun á lýsingu í Boganum vegna skorts á varahlutum í núverandi lýsingu og hærri viðhaldskostnaðar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu.
Sundlaug Akureyrar - innilaug
Málsnúmer 2024030770Lagt fram minnisblað dagsett 11. október 2024 vegna opnunar tilboða í endurnýjun á innilaug Sundlaugar Akureyrar. Ellefu tilboð bárust í fimm af sjö flokkum útboðsins. Engin tilboð bárust í stálsmíði og sögun og múrbrot.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka lægstu gildu tilboðunum í lagnir, raflagnir og múrverk og hafnar tilboðum í húsasmíði og blikksmíði þar sem þau voru hátt yfir kostnaðaráætlun.
Í lögnum er samþykkt að semja við Lagnastýringu ehf. að upphæð kr. 36.838.600.
Í raflögnum er samþykkt að semja við Rafeyri ehf. að upphæð kr. 14.738.715.
Í múrverki er samþykkt að semja við Múrey ehf. að upphæð kr. 36.049.500.
Biðtími samningsgerðar er 5 dagar.Slökkviliðið á Akureyri - viðhald á húsnæði
Málsnúmer 2022051057Lagt fram minnisblað dagsett 10. október 2024 varðandi breytingar á slökkvistöðinni til þess að mæta fjölgun í liðinu og kynjasamsetningu þess.
Hlíðarfjall - yfirferð vetrar
Málsnúmer 2024050866Lögð fram minnisblöð dagsett 7. og 11. október 2024 varðandi lengri opnunartíma á fimmtudögum og samantekt á viðhaldi á mannvirkjum í Hlíðarfjalli.