Bæjarráð - 3881
- Kl. 08:15 - 09:03
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3881
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttirvaraformaður
- Hlynur Jóhannsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirbæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2025-2028 - viðauki
Málsnúmer 2024040694Lagður fram viðauki 1.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir viðauka 1 og vísar honum til umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fylgiskjöl
Amtsbókasafnið - endurnýjun á búnaði
Málsnúmer 2025020393Lagt fram minnisblað varðandi endurnýjun á húsgögnum fyrir Amtsbókasafnið.
Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að húsgögn í veitingarými og á útisvæði safnsins verði endurnýjuð fyrir 6,6 m.kr. og að úthlutað verði úr stofnbúnaðarsjóði vegna kaupanna.
Fylgiskjöl
Lánasjóður sveitarfélaga - auglýst eftir framboðum í stjórn 2025
Málsnúmer 2025020478Lagt fram erindi frá tilnefningarnefnd Lánasjóðs sveitarfélaga ohf., dagsett 11. febrúar 2025, þar sem auglýst er eftir framboðum til stjórnar og varastjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga.
Áformað er að halda aðalfund Lánasjóðsins síðdegis fimmtudaginn 20. mars 2025 á Hilton Reykjavik Nordica, en fundurinn verður boðaður sérstaklega síðar í samræmi við lög um hlutafélög.
Frestur til að skila framboðum eða tilnefningum til tilnefningarnefndar rennur út kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 24. febrúar 2025.Fylgiskjöl
Fundargerðir öldungaráðs
Málsnúmer 2023050173Lögð fram til kynningar fundargerð 43. fundar öldungaráðs sem haldinn var 15. janúar 2025.
Fylgiskjöl
Stjórn Norðurorku hf. - fundargerðir 2022-2025
Málsnúmer 2022031302Lögð fram til kynningar fundargerð 306. fundar stjórnar Norðurorku hf. sem haldinn var 5. febrúar 2025.
Fylgiskjöl
Hafnasamlag Norðurlands 2025
Málsnúmer 2025020563Lögð fram til kynningar fundargerð 294. fundar Hafnasamlags Norðurlands dagsett 12. febrúar 2025.
Fylgiskjöl
Heilbrigðisnefnd Norðurlandssvæðis eystra - fundargerðir 2022-2025
Málsnúmer 2022030389Lögð fram til kynningar fundargerð 240. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra sem haldinn var 12. febrúar 2025.
Fylgiskjöl
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2025
Málsnúmer 2025020133Lögð fram til kynningar fundargerð 963. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var föstudaginn 31. janúar 2025.
Fylgiskjöl