VERÐANDI Listsjóður | Opið fyrir umsóknir
Listsjóðurinn VERÐANDI auglýsir eftir umsóknum fyrir starfsárið 1. ágúst 2025-31. júli 2026.
29. apríl 2025
Sjóðurinn veitir styrki til kostnaðar vegna afnota af salarkynnum, tæknibúnaði, tækniþjónustu og framhúsi í Menningarhúsinu Hofi ásamt auglýsingu í útiskjá.
Helstu markmið sjóðsins eru að auðvelda ungu listafólki og þeim sem standa utan stofnanna að nýta sér þá fyrirmyndar aðstöðu sem Hof hefur upp á að bjóða, stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum í húsinu og nýta möguleika þess sem best.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2025.
Hér má sjá vinnureglur úthlutunarnefndarinnar
Hér má sjá myndir af Hamraborg, Svarta kassanum, Hömrum og Nausti.
VERÐANDI er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningafélags Akureyrar.
Síðast uppfært 29. apríl 2025