Beint í efni

Velferðarsvið heldur námskeið um áhrif skilnaðar á fjölskyldu

Velferðarsvið Akureyrarbæjar býður upp á námskeið í maí með það fyrir augum að lágmarka áhrif skilnaðar á börn og ungmenni.

Velferðarsvið Akureyrarbæjar býður upp á námskeið í maí með það fyrir augum að lágmarka áhrif skilnaðar á börn og ungmenni.

Námskeiðið Samvinna eftir skilnað – barnanna vegna fjallar um áhrif skilnaðar á fjölskyldu. „Að skilja er lífskrísa fyrir foreldra og börn og oft er sagt að ein algengustu áföll barna sé skilnaður. Því miður láta foreldrar stundum stjórnast af erfiðum og flóknum tilfinningum sem bitnar ómeðvitað á börnunum. Við segjum iðulega að það er ekki skilnaðurinn sjálfur sem veldur mestum skaða heldur það hvernig staðið er að honum gagnvart börnunum,“ segir Halldóra K. Hauksdóttir forstöðumaður félagsþjónustunnar. 

Fyrirhugað er að halda námskeið 13., 20. og 27. maí frá kl. 16:30-19:30 í húsnæði velferðarsviðs að Glerárgötu 26, 2. hæð. Umsjónarmenn námskeiðsins eru Halldóra Kristín Hauksdóttir, forstöðumaður félagsþjónustunnar, og Katrín Reimarsdóttir, félagsráðgjafi á velferðarsviði. Skráning fer fram í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar. Þjónustan er öllum að kostnaðarlausu.

Nánari upplýsingar á www.samvinnaeftirskilnad.is