Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 1013
- Kl. 10:00 - 10:30
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 1013
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
- Ólafur Elvar Júlíussonverkefnastjóri byggingarmála
1. Sigtún - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2
Erindi dagsett 25. febrúar 2025 þar sem Pálmar Kristmundsson f.h. nthspace á Íslandi ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á Sigtúni í Grímsey á sama stað og núverandi hús stendur. Grenndarkynningu lokið án athugasemda.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
2. Sigtún - umsókn um byggingarleyfi - niðurrif
Erindi dagsett 23. apríl 2025 þar sem nthspace á Íslandi ehf. sækir um niðurrif á Sigtúni í Grímsey.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.
3. Laufásgata 11 - umsókn um byggingarleyfi - niðurrif
Erindi dagsett 14. apríl 2025 þar sem BB byggingar ehf. sækja um niðurrif á vesturhluta húss nr. 11 við Laufásgötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.
4. Hrísmói 2-4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2
Erindi dagsett 1. apríl 2025 þar sem Larix byggingarfélag ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir parhúsi á lóð nr. 2-4 við Hrísmóa. Innkomnin gögn eftir Guðmund Gunnarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
5. Ægisnes 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2
Erindi dagsett 22. apríl 2025 þar sem Kristján Ásgeirsson f.h. Íslenska gámafélagsins ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir flokkunarskemmu á lóð nr. 3 við Ægisnes. Innkomin gögn eftir Kristján Ásgeirsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
6. Lyngholt 20 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 1
Erindi dagsett 14. nóvember 2024 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Arnbjargar Kristínar Konráðsdóttur sækir um breytingar utanhúss á húsi nr. 20 við Lyngholt. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
7. Helgamagrastræti 15 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 1
Erindi dagsett 27. nóvember 2024 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. Önnu Maríu Hallgrímsdóttur sækir um að breyta bílgeymslu á lóð nr. 15 við Helgamagrastræti í snyrtistofu og geymslu. Innkomin uppfærð gögn eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.