Stjórn Akureyrarstofu - 302
- Kl. 14:00 - 16:15
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 302
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðforstöðumaður Akureyrarstofu
Sigurhæðir - leiga húsnæðis
Málsnúmer 2019090404Lögð fram minnisblöð frá UMSA dagsett 23.06 og 05.08.2020.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda á Umhverfis- og mannvirkjasviði mætti á fundinn og fór yfir minnisblöðin.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður mætti á fundinn undir umræðum.Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að vinna málið áfram og ræða við tilboðsgjafa vegna breyttra forsenda.
Hátíðarhöld á vegum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2020060901Umræða um fyrirkomulag hátíðahalda á vegum Akureyrarbæjar sérstaklega í ljósi COVID-19.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir umsögn ungmennaráðs á fyrirkomulagi barnamenningarhátíðar og felur starfsmönnum að ræða við samráðshóp barnamenningarhátíðar um framkvæmd hennar í ljósi COVID-19.
Minjasafnið á Akureyri, fundargerðir stjórnar
Málsnúmer 2019030227Fundargerðir stjórnar Minjasafnsins á Akureyri nr. 11 - 15 lagðar fram til kynningar.
Fylgiskjöl
- 11. fundargerð stjórnar Minjasafnsins á Akureyri 13.12.2019.pdf
- 12. fundargerð stjórnar Minjasafnsins á Akureyri 11.2.2020.pdf
- 13. fundargerð stjórnar Minjasafnsins á Akureyri 31.3.2020.pdf
- 14. fundargerð stjórnar Minjasafnsins á Akureyri 19.5.2020.pdf
- 15. fundargerð stjórnarfundar Minjasafnsins á Akureyri 26.6.2020.pdf
Minjasafnið á Akureyri - ársreikningur 2019
Málsnúmer 2020070057Ársreikningur Minjasafnsins á Akureyri fyrir árið 2019 lagður fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2020
Málsnúmer 2020040153Lagt fram til kynningar 6 mánaða rekstraryfirlit
Fylgiskjöl
Samfélagssvið - starfsmannamál
Málsnúmer 2018110172Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Stjórn Akureyrarstofu, fundaáætlun 2020
Málsnúmer 2019120006Lögð fram tillaga að fundaáætlun haustannar 2020
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagða áætlun.
Fylgiskjöl