Beint í efni

Smáhýsi við Síðubraut - breyting á deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Grænhóls, athafnasvæðis.

Breytingin felur í sér að afmörkuð verður ný 3.600 m2 lóð á erfðafestulandi norðvestan Síðubrautar og sunnan Sjafnargötu 1a og 1b þar sem gert er ráð fyrir allt að fimm smáhýsum sem eru hugsuð sem búsetuúrræði fyrir heimilislaust fólk með fjölþættan vanda.

Deiliskipulagsuppdráttinn má nálgast hér.

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér tillöguna og senda inn ábendingar í gegnum Skipulagsgátt þar sem fram kemur nafn og kennitala.

Frestur til að skila inn ábendingum er veittur til 12. júní 2025.