Útboð á göngubrú í Móahverfi
Umhverfis- og mannvirkjasvið fyrir hönd Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í byggingu á nýrri steinsteyptri, göngubrú/undirgöngum í götustæði Borgarbrautar, stígagerð að aðliggjandi stígum, uppsetningu á gabíona (grjótkörfur) stoðveggjar og uppsetningar á lýsingu.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með föstudeginum 21. febrúar 2025.
Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 11. apríl 2025 kl. 13:15 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.